Ferill 597. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1986 — 597. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum á sviði íþrótta- og æskulýðsstarfs (hlutverk samskiptaráðgjafa, öflun upplýsinga o.fl.).
(Eftir 2. umræðu, 6. júní.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, nr. 45/2019.
1. gr.
2. gr.
Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er heimil vinnsla persónuupplýsinga sem nauðsynleg er til að hann geti sinnt hlutverki sínu á grundvelli laga þessara. Heimild þessi tekur til vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga og annarra upplýsinga viðkvæms eðlis, þ.m.t. heilsufarsupplýsinga og upplýsinga um félagslegar aðstæður einstaklinga, svo og upplýsinga um refsiverða háttsemi og ætlaða refsiverða háttsemi.
Að því marki sem nauðsynlegt er fyrir framkvæmd laga þessara er samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs heimilt að miðla upplýsingum til þeirra aðila sem falla undir gildissvið laganna. Heimild þessi tekur til miðlunar viðkvæmra persónuupplýsinga og annarra upplýsinga viðkvæms eðlis, þ.m.t. heilsufarsupplýsinga og upplýsinga um félagslegar aðstæður einstaklinga, svo og upplýsinga um refsiverða háttsemi og ætlaða refsiverða háttsemi.
3. gr.
4. gr.
II. KAFLI
Breyting á íþróttalögum, nr. 64/1998.
5. gr.
a. Á eftir orðunum „XXII. kafla“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 211. eða 218. gr.
b. 2. mgr. orðast svo:
Stjórnendur þeirra aðila sem falla undir lög þessi og sinna íþróttastarfi barna og ungmenna undir 18 ára aldri eiga rétt til upplýsinga úr sakaskrá um það hvort tiltekinn umsækjandi um starf á þeirra vegum hefur hlotið dóm vegna brota sem 1. mgr. tekur til, að fengnu samþykki hans. Á þetta einnig við um upplýsingar um þá sem falin er umsjón með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri á grundvelli sjálfboðaliðastarfs.
6. gr.