Ferill 1103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2219  —  1103. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um skimun fyrir krabbameini.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu hátt hlutfall kvenna sem fengu boð mætti í skimun fyrir krabbameini í brjóstum og leghálsi árið 2022 og síðustu fjögur ár þar á undan?

    Hér fyrir aftan kemur fram mætingarhlutfall kvenna í skimun fyrir krabbameini í brjóstum og leghálsi árin 2018–2022.
    Mætingarhlutfall er vel skilgreindur alþjóðlegur gæðavísir í krabbameinsskimun og er reiknað sem uppsafnaður fjöldi kvenna sem mættu síðastliðin 2 ár í brjóstaskimun og síðastliðin 3,5 ár í leghálsskimun sem hlutfall af fjölda kvenna á skimunaraldri sem eru á boðskrá í skimunarskrá.

     Mætingarhlutfall í skimun fyrir brjóstakrabbameini árin 2018–2022:
     2018      57%     
    2019     61%     
    2020     62%     
    2021     54%     
    2022     52%     

     Mætingarhlutfall í skimun fyrir leghálskrabbameini árin 2018–2022:
    2018     66%
    2019     67%
    2020     66%
    2021     65%
    2022     62%