Ferill 1033. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2252  —  1033. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur um heimilislækna.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hver var meðalbiðtími eftir heimilislækni á hverri heilsugæslustöð árin 2017–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum og því hvort um er að ræða viðtal eða símatíma.
     2.      Hversu margir höfðu heimilislækni og hversu margir voru án hans árin 2017–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum og heilsugæslustöðvum.


    Heilbrigðisráðuneytið óskaði eftir ofangreindum upplýsingum frá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins (HH), Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE), Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVEST), Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA), Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU), Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) og Sjúkratryggingum Íslands. Svör bárust ekki frá öllum framangreindum aðilum.
    Eftir yfirferð á gögnunum varð ráðuneytinu ljóst að til að svara fyrirspurninni þyrfti að ráðast í mikla greiningarvinnu og ítarlega staðlaða upplýsingaöflun frá heilbrigðisstofnunum. Er það mat ráðuneytisins að vinna við að ljúka fyrirspurninni sé umfram það sem lagt er til grundvallar í 57. gr. þingskapalaga, nr. 55/1991. Umfang vinnu við að svara fyrirspurninni sé þess eðlis að það eigi fremur við um skýrslu skv. 54. gr. þingskapalaga.
    Umfangsmikil vinna í heilbrigðisráðuneytinu er þegar hafin við mönnunargreiningu þvert á heilbrigðiskerfið, sem miðar að því að móta framtíðarsýn ráðuneytisins um gögn og greiningar, ná yfirsýn yfir mönnun heilbrigðisstétta og undirbyggja mönnunaráætlun til framtíðar. Niðurstaða þeirrar greiningar kemur í framtíðinni að góðum notum við að svara fyrirspurnum sem þessari.
    Þá hefur ráðherra nú sett af stað umfangsmikið verkefni um framtíð læknisþjónustu á Íslandi sem verður unnið í nánu samstarfi við haghafa.