Ferill 64. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 64 — 64. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um skjaldarmerki frá 1881 á framhlið Alþingishússins.
Flm.: Birgir Þórarinsson, Ásmundur Friðriksson, Óli Björn Kárason.
Alþingi ályktar að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að setja upp að nýju skjaldarmerki sem prýddu framhlið Alþingishússins á vígsludegi þess 1. júlí 1881.
Greinargerð.
Endurbætur á Alþingishúsinu á umliðnum árum hafa miðast að því að húsið sé sem næst í upphaflegu horfi frá því að það var reist 1881. Þessi tillaga miðar að sama marki. Komandi kynslóðir eiga rétt á því að þekkja söguna og þau mannvirki og kennileiti sem bera henni vitni, þar á meðal Alþingishúsið í upphaflegri mynd. Á meðfylgjandi teikningu af Alþingishúsinu má sjá umrædd skjaldarmerki.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.