Ferill 134. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 134  —  134. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um lagningu heilsársvegar í Árneshrepp.


Flm.: Bjarni Jónsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Teitur Björn Einarsson, Eyjólfur Ármannsson, Bergþór Ólason.


    Alþingi ályktar að lagður skuli heilsársvegur norður í Árneshrepp, þ.e. eftir Strandavegi (643) í Norðurfjörð. Meginframkvæmdir eigi sér stað á næstu fjórum árum og verði að fullu lokið árið 2030.

Greinargerð.

    Með þessari tillögu er ætlunin að fylgja eftir ályktunum Alþingis um aðgerðir til að standa vörð um byggð í Árneshreppi á Ströndum. Tillagan var lögð fram á 140. og 141. löggjafarþingi (191. mál) og er nú endurflutt. Greinargerð með tillögunni hefur verið uppfærð með tilliti til byggða- og atvinnuþróunar síðustu ellefu ára, breytinga á samgönguáætlun og mikilvægra byggðaverkefna, svo sem Brothættra byggða, sem hafa haft jákvæð áhrif í Árneshreppi frá árinu 2014.
    Jón Bjarnason var fyrsti flutningsmaður tillögunnar og hafði um langt skeið beitt sér fyrir uppbyggingu og eflingu Árneshrepps. Í flutningsræðu með tillögunni á 141. löggjafarþingi lagði hann höfuðáherslu á að vegurinn fengist viðurkenndur á vegáætlun sem heilsársvegur og kæmi til framkvæmda í sýnilegri, náinni framtíð. Þá vísaði hann til þess að íbúar í Árneshreppi á Ströndum verðskuldi svo sannarlega að Alþingi standi við þau fyrirheit sem það hafi ítrekað gefið um að standa við bak þeirra í byggð, búsetu og atvinnulífi norður í Árneshreppi. Þau áform sem vísað er til eru rakin í þessari greinargerð.
    Árið 2003 samþykkti Alþingi samhljóða svohljóðandi þingsályktun um aðgerðir til verndunar búsetu og menningarlandslags í Árneshreppi, en fyrsti flutningsmaður þeirrar tillögu var Einar K. Guðfinnsson: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að setja á stofn nefnd er vinni að gerð tillagna um aðgerðir til verndunar búsetu og menningarlandslags í Árneshreppi í Strandasýslu á grundvelli samþykktar norrænu ráðherranefndarinnar frá 12. nóvember 1996 og leita eftir víðtæku samstarfi heimamanna og félagasamtaka í þeim tilgangi.“
    Í nefndaráliti umhverfisnefndar var samþykkt tillögunnar rökstudd á eftirfarandi hátt: „Nefndin telur að stuðla eigi að verndun þess menningararfs sem felst í búsetu og búsetuminjum í jaðarbyggðum Íslands. Við umfjöllun málsins var bent á að jaðarbyggðir landsins endurspegli mjög vel tengsl þjóðarinnar við landið í aldanna rás og með hvaða hætti þjóðin nýtti sér gæði þess til lífsviðurværis. Því væru þær afar mikilvægur þáttur í menningarsögu þjóðarinnar. Árneshreppur á Ströndum er á margan hátt einstök jaðarbyggð, landfræðilega afmarkaður, nokkuð þéttbýll, auk þess sem þar er að finna fjölbreyttar minjar um búsetu, atvinnuhætti og sögu þjóðarinnar.“
    Með samþykkt Alþingis á þessari tillögu sýndi Alþingi stefnumarkandi vilja sinn og jafnframt voru skapaðar væntingar hjá íbúunum um að hugur fylgdi máli af hálfu Alþingis. Í framhaldi af samþykkt þessarar tillögu var m.a. veitt nokkurt fé til stuðnings uppbyggingu ferðaþjónustu, viðgerð húsa og uppbyggingu safna í hreppnum. Jafnframt var unnið að því að vegurinn norður í Árneshrepp færi inn á samgönguáætlun og yrði unninn í áföngum. Unnið var að uppbyggingu vegarins frá Bjarnarfirði og norður Bala sem var mikil samgöngubót.
    Að öðru leyti hefur áætlunin ekki gengið eftir sem skyldi og áframhaldandi vegbótum slegið á frest. Á 130. löggjafarþingi sagði þáverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson: „Ég segi fyrir mitt leyti að ég er sammála því mati Alþingis sem er mjög sértækt að gera sérstaka ályktun um þetta sveitarfélag eitt og sér. Um það var samstaða hér. Ég tel að þetta sveitarfélag, mannlífið þar, forsagan öll, [...] hafi mikla og sérstaka þýðingu og því sé ekki bara verjandi heldur æskilegt að við sameinumst um það og stuðlum öll að því að það megi vernda það mannlíf og samfélag sem þarna er um að ræða. Ég vil fyrir mitt leyti [...] lýsa því yfir að ég mun styðja við málið eins og ég get úr forsrn. a.m.k. meðan ég sit þar. [...] Ég tel að sú samstaða sem náðist um þáltill. hafi verið afar sérstæð í þinginu og mikilvæg þannig að ríkisvaldið í hvaða mynd sem það er statt hefur hvorki efni né ástæðu til að draga lappirnar hvað þetta mál varðar.“
    Vetri síðar, á 131. löggjafarþingi, tók þáverandi forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson, í sama streng og lagði áherslu á samgöngubætur á umræddu svæði: „Ég vil fyrir mitt leyti, miðað við þá þekkingu sem ég hef á aðstæðum í Árneshreppi, segja að ég tel uppbyggingu vegakerfisins mikilvægasta af öllu. Það er víða mjög slæmt. Ég veit ekki til þess að það hafi verið sérstakt forgangsverkefni í Norðvesturkjördæmi. Ég tel að þar þurfi að verða breyting á. Ég hef farið þarna um nokkrum sinnum og tel að að hluta til séu vegarkaflar á þessu svæði með eindæmum, miðað við það sem annars staðar gerist á byggðu bóli. Ég tel að þetta sé mjög mikilvægt, ekki bara út af byggðinni heldur líka út af aðgangi ferðamanna að þessu svæði. Þetta svæði er ein af mestu náttúruperlum þessa lands og jafnframt tel ég að ýmislegt sem varðar menningu og menntun á svæðinu, eins og fjarnám og annað slíkt, eigi að hafa forgang.“
    Í umræðum um fyrirspurn af sama tilefni á 135. löggjafarþingi fór þáverandi forsætisráðherra, Geir H. Haarde, yfir þær aðgerðir sem ráðist hefði verið í til þess að fylgja þingsályktun eftir sem Alþingi hafði samþykkt einróma nokkrum árum áður: „Á undanförnum árum hefur verið unnið að uppbyggingu svokallaðs Strandavegar sem liggur frá botni Steingrímsfjarðar allt norður til Norðurfjarðar í Árneshreppi. Á næsta ári verður varið tæpum 100 millj. kr. til þeirra framkvæmda og verður þá uppbyggður vegur kominn norður fyrir Kaldbak. Á árunum 2009–2010 verður 60 millj. kr. varið til uppbyggingar vegar yfir Veiðileysuháls. Sú samgöngubót mun gagnast íbúum Árneshrepps verulega. Við afgreiðslu fjárlaga ársins 2007 var samþykkt að veita 5 millj. kr. til Árneshrepps og lá þar m.a. til grundvallar fyrrnefnd greinargerð nefndarinnar um aðgerðir til verndunar búsetu og menningarlandslags í Árneshreppi.“
    Á 140. löggjafarþingi lögðu svo Ásmundur Einar Daðason o.fl. fram þingsályktunartillögu um snjómokstur í Árneshreppi (607. mál) þar sem lagt var til að tryggt yrði að Vegagerðin annaðist eða greiddi fyrir nauðsynlegan snjómokstur á vegi 643, Strandavegi, tvo daga í viku. Í rökstuðningi fyrir þeirri tillögu er vikið að neikvæðum áhrifum færðar á daglegt líf íbúa svæðisins sem gerir þeim erfitt fyrir að sækja sér grunnþjónustu á veturna, auk áhrifa á uppbyggingu ferðaþjónustu. Samkvæmt tillögunni sem lögð var fram á 141. löggjafarþingi (191. mál) var talið að um tíu þúsund manns hefðu heimsótt svæðið árlega yfir sumartímann. Ætla má að sá fjöldi hafi margfaldast en ferðamenn á landsvísu voru 672.880 árið 2012 þegar tillagan var lögð fram. Í júní 2023 var fjöldi ferðamanna nærri 2.000.000 samkvæmt gögnum frá Ferðamálastofu. Í því tilliti má ætla að álag á vegakerfið í Árneshreppi hafi aukist svo um munar eins og víðast hvar á landinu. Á sumrin hefur þar verið starfrækt blómleg ferðaþjónusta enda er svæðið vinsælt meðal ferðalanga sem eru á leið til Hornstranda. Hornstrandafriðland nær yfir nyrsta hluta Vestfjarðakjálkans yfir að Aðalvík og norðurhluta Jökulfjarðanna. Ferðaþjónusta á svæðinu er því lykillinn að einni af fágætustu náttúruperlum landsins.
    Í tillögunni frá 141. löggjafarþingi (191. mál) var lagt til að Alþingi tæki ákvörðun um að ljúka að mestu gerð heilsársvegar um Árneshrepp fyrir lok árs 2016 og að fullu fyrir árið 2020. Lagt var til að vegurinn yrði almennt einbreiður, þ.e. 4 m breiður, með góðum útskotum og yrði sveitarfélagið stutt til þess að hraða og ljúka skipulagi vegna framkvæmdarinnar.
Engin önnur þingmannamál hafa komið fram sem varða vegagerð um Árneshrepp, en fjöldi þingmanna hefur haldið á lofti merkjum svæðisins í ræðu og riti. Þá hafa ýmis samtök, svo sem Vestfjarðastofa og Fjórðungssamtök Vestfjarða, haldið uppi kröfu um uppbyggingu vegar norður um Árneshrepp og að vegþjónusta verði aukin, auk sveitarfélagsins sjálfs.
    Byggðaþróunarverkefni Byggðastofnunar, Brothættar byggðir, hefur verið starfrækt á sjöunda ár í Árneshreppi undir nafninu Áfram Árneshreppur. Meðal þess sem hefur komið til framkvæmda á tímanum er lagning þriggja fasa rafmagns og ljósleiðara í hreppnum. Þá hefur verið gerð bragarbót á vetrarþjónustu Vegagerðarinnar síðastliðna tvo vetur svo að mögulegt hefur verið að aka þangað að vetrarlagi. Í drögum að samgönguáætlun, sem birtist í samráðsgátt stjórnvalda í sumar, hefur vegbótum um Veiðileysuháls sem áttu að koma til framkvæmda á árinu 2024 verið frestað til ársins 2029. Slíkar vanefndir gefinna fyrirheita kæmu mjög illa við viðkvæma byggð í Árneshreppi og eru til þess fallnar að grafa undan þeim jákvæða ávinningi og bjartsýni sem vel heppnað verkefni Brothættra byggða hefur skapað. Vegbætur um Veiðileysuháls eru lykilþáttur í að stytta það tímabil árs þar sem landvegur er lokaður norður í Árneshrepp og yrðu mikilvægur hlekkur í heildarsamgöngubótum á svæðinu.
    Það er mikilvægt fyrir búsetu á svæðinu og þá uppbyggingu innviða og atvinnu sem hefur átt sér stað síðastliðinn áratug að tryggja samgöngur í Árneshreppi.
    Með samþykkt þessarar tillögu og tímasettri eftirfylgni og verkáætlun er Alþingi að standa við fyrirheit um að leggja heilsársveg um byggðina til og frá Árneshreppi á Ströndum.