Ferill 191. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 193  —  191. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um heilsugæslu í Suðurnesjabæ.


Flm.: Ásmundur Friðriksson, Birgir Þórarinsson, Óli Björn Kárason, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason, Ásthildur Lóa Þórsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að láta Sjúkratryggingar Íslands skoða kosti þess að bjóða út rekstur heilsugæslu í Suðurnesjabæ, með samstarfi við einkaaðila eða Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, HSS. Jafnframt ályktar Alþingi að fela heilbrigðisráðherra að kanna samþættingu þjónustu sérfræðilækna og annarra sérgreina í öllum byggðarkjörnum á Suðurnesjum.

Greinargerð.

    Í Suðurnesjabæ búa um 4.000 manns eftir að sveitarfélögin Garður og Sandgerði sameinuðust fyrir um sex árum. Þetta gerir Suðurnesjabæ að fjölmennasta sveitarfélagi landsins þar sem ekki er starfrækt heilsugæslustöð. Heilbrigðisþjónusta og opnun heilsugæslustöðvar í Suðurnesjabæ er löngu tímabær og mikilvægur hluti grunnþjónustu hvers samfélags. Mikilvægt er að skoða í heild mögulega samvinnu heilsugæslu- og heilbrigðisþjónustu í sveitarfélögunum á Suðurnesjum svo bjóða megi í framtíðinni upp á fjölbreyttari þjónustu sérfræðilækna í heimabyggð.

Tafla. 20 stærstu sveitarfélög landsins eftir íbúafjölda.

Sveitarfélag (eftir íbúafjölda) Fjöldi íbúa
(1. janúar 2023)
Heilsugæslustöð
(já/nei)
1 Reykjavíkurborg 139.875
2 Kópavogsbær 39.810
3 Hafnarfjarðarkaupstaður 30.568
4 Reykjanesbær 22.059
5 Akureyrarbær 19.893
6 Garðabær 18.891
7 Mosfellsbær 13.430
8 Sveitarfélagið Árborg 11.239
9 Akraneskaupstaður 7.997
10 Fjarðabyggð 5.262
11 Múlaþing 5.208
12 Seltjarnarnesbær 4.674
13 Vestmannaeyjabær 4.523
14 Skagafjörður 4.306
15 Borgarbyggð 4.090
16 Suðurnesjabær 3.925 Nei
17 Ísafjarðarbær 3.864
18 Grindavíkurbær 3.669
19 Hveragerðisbær 3.196
20 Norðurþing 3.156

    Jafnframt felur tillaga þessi í sér að ráðherra láti kanna hvernig heilsugæslur á Suðurnesjum geti unnið saman í framtíðinni að bættri þjónustu, framboði af sérfræðilæknum og almennri þjónustu sem í boði er á bestu heilsugæslustöðvum í nútímasamfélagi. Leiða má líkur að því að auknir valmöguleikar hvað varðar rekstrarform hafi í för með sér að auðveldara verði að fá heimilislækna til starfa á Suðurnesjum, en oft og tíðum hefur reynst erfitt að fá sérfræðinga, hvort sem er á sviði læknisfræðinnar eða annarra sérfræðigreina, til starfa á landsbyggðinni og því mikilvægt að gera starfsumhverfi þeirra eins fjölbreytt og aðlaðandi og unnt er.
    Þá hefur reynslan af einkareknum heilsugæslustöðvum verið góð og njóta þær almennt meira trausts en aðrar heilsugæslustöðvar, sbr. þjónustukönnun Maskínu fyrir allar 19 heilsugæslustöðvarnar á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2019. Þar kom fram að allar fjórar einkareknu heilsugæslustöðvarnar á höfuðborgarsvæðinu voru ofarlega á lista yfir þær heilsugæslustöðvar sem nutu mests trausts, en þær voru allar meðal þeirra sjö heilsugæslustöðva sem voru efstar í könnuninni. Í sömu könnun var spurt um ánægju viðskiptavina með þá þjónustu sem heilsugæslustöðvarnar buðu upp á og var niðurstaðan aftur afgerandi, en einkareknu heilsugæslustöðvarnar fjórar röðuðu sér í fjögur efstu sætin.
    Kostir einkarekinna heilsugæslustöðva eru ótvíræðir og því full ástæða til þess að bjóða ekki einungis upp á þann kost á höfuðborgarsvæðinu heldur einnig tryggja landsbyggðinni möguleika á að nýta sér þjónustu þeirra. Það skref hefur nú verið stigið í Reykjanesbæ með opnun einkarekinnar heilsugæslu nú í haust.
    Það eru rúm tvö ár síðan að bæjaryfirvöld í Suðurnesjabæ óskuðu eftir því við heilbrigðisráðuneytið að fá heilsugæslustöð í bæjarfélagið. Mörg ár eru síðan heilsugæslustöðvum þar var lokað og þurfa íbúar að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Reykjanesbæ og fjölmargir kjósa að sækja þá þjónustu til Reykjavíkur. Það er því tæplega 4.000 manna sveitarfélag sem býr við skort á þjónustu í sínu nærumhverfi og bætist sá hópur við þá þjónustu sem veitt er í Reykjanesbæ og höfuðborgarsvæðinu sem þegar er undir miklu álagi. Ráðherra á ekki annan kost en að leysa þennan bráðavanda með hagsmuni íbúa í Suðurnesjabæ og Suðurnesjum í huga.
    Með því að opna heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ og auka samstarf þeirra á svæðinu með tíðari viðveru sérfræðilækna má stórbæta aðgengi íbúa að heilbrigðisþjónustu. Það er mat flutningsmanna að leysa megi þann vanda sem við blasir með góðri samvinnu einkareksturs og opinbers reksturs.