Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 205  —  203. mál.




Fyrirspurn


til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um námslán og veikindi.

Frá Gísla Rafni Ólafssyni.


     1.      Hversu margir sóttu um námslán árin 2010–2022, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hversu margir fengu samþykkt námslán árin 2010–2022, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hversu margir á árunum 2010–2022 fengu ekki greitt fullt námslán vegna þess að fullur námsárangur náðist ekki, sundurliðað eftir árum?
     4.      Hversu margir sóttu um takmarkaða námsframvindu vegna veikinda árin 2010–2022, sundurliðað eftir árum?
     5.      Hversu margir fengu samþykkta takmarkaða námsframvindu vegna veikinda árin 2010– 2022, sundurliðað eftir árum?


Skriflegt svar óskast.