Ferill 207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 210  —  207. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um blóðgjafir.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hvað líður vinnu við breytingar á reglugerð nr. 441/2006, um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs, og IV. viðauka við sömu reglugerð í því skyni að afnema mismunun gagnvart samkynhneigðum þegar kemur að blóðgjöf?
     2.      Hvenær áætlar ráðherra að ljúka fyrrgreindum breytingum og afnema mismunun sem blóðgjafar hafa sætt á grundvelli kynhneigðar?


Munnlegt svar óskast.