Ferill 216. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 219  —  216. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um kostnað vegna komu ferðamanna á Sjúkrahúsið á Akureyri.

Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.


     1.      Hvað hafa komur ósjúkratryggðra ferðamanna á Sjúkrahúsið á Akureyri verið margar árin 2023 og 2022?
     2.      Hver er fjöldi ósjúkratryggðra ferðamanna sem hafa leitað á bráðamóttöku á Sjúkrahúsinu á Akureyri árin 2023 og 2022?
     3.      Hver var kostnaðurinn af komum ósjúkratryggðra ferðamanna á Sjúkrahúsið á Akureyri á fyrrgreindu tímabili?
     4.      Hvaða áhrif telur ráðherra að þessar komur hafi á álag á Sjúkrahúsið á Akureyri?
     5.      Hvernig hefur gengið að innheimta kostnað af komum ósjúkratryggðra á Sjúkrahúsið á Akureyri?


Skriflegt svar óskast.