Ferill 219. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 222  —  219. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um eftirlit með snyrtistofum.

Frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur.


     1.      Hversu mörgum snyrtistofum hefur lögreglan haft eftirlit með á síðastliðnum þremur árum með það að markmiði að kanna hvort starfsmenn uppfylli skilyrði þess að starfa sem snyrtifræðingar? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     2.      Hversu mörgum málum hefur lokið með kæru? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     3.      Er unnið í ráðuneytinu að útfærslu og endurbótum á eftirliti með snyrtistofum?


Skriflegt svar óskast.