Ferill 232. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 235  —  232. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um meðferðarstöðvar.

Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.


     1.      Hver var meðalfjöldi einstaklinga á biðlista á Sjúkrahúsið Vog annars vegar og meðferðarstöðina Vík hins vegar í hverjum mánuði síðastliðin tvö ár?
     2.      Stendur yfir vinna í ráðuneytinu við að stytta þessa biðlista með einhverjum hætti?
     3.      Hvert var hlutfall þeirra sem þáðu boð um meðferð og þeirra sem höfnuðu því þegar röðin kom að þeim í hverjum mánuði síðastliðin tvö ár?


Skriflegt svar óskast.