Ferill 275. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 278  —  275. mál.




Fyrirspurn


til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um ferðakostnað.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hver var, frá og með árinu 2018, árlegur ferðakostnaður ráðuneytis og undirstofnana, flokkað eftir stofnun og hvort ferðakostnaður var vegna ferða innan lands eða erlendis?
     2.      Hver er sundurliðun meðalferðakostnaðar, frá og með árinu 2018, samkvæmt reglum um ferðakostnað?
     3.      Hver var meðalfjöldi ferða annars vegar og gistinátta hins vegar í ferðum ráðuneytis og hverrar undirstofnunar fyrir sig frá og með árinu 2018?
     4.      Hver var meðalfjöldi fólks sem ferðaðist á vegum ráðuneytis og hverrar undirstofnunar fyrir sig frá og með árinu 2018?


Skriflegt svar óskast.