Ferill 333. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 340  —  333. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um rétt eftirlifandi foreldris til sorgarleyfis.

Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.


    Telur ráðherra að réttur til sorgarleyfis eigi að gilda um eftirlifandi foreldri barna yngri en 18 ára sem missa annað foreldri? Telur ráðherra að staða þessara foreldra eigi að vera sambærileg við rétt þeirra foreldra sem verða fyrir barnsmissi?


Munnlegt svar óskast.