Ferill 387. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 399  —  387. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um kennsluefni í kynfræðslu í grunnskólum.

Frá Birgi Þórarinssyni.


     1.      Hver ákvað að kennslubókin Kyn, kynlíf og allt hitt eftir Cory Silverberg og Fionu Smyth yrði notuð við kynfræðslu í grunnskólum?
     2.      Hverjir utan Menntamálastofnunar og ráðuneytisins komu að vali á kennslubókinni?
     3.      Hvaða viðmið lágu til grundvallar vali á kennslubókinni?
     4.      Var sérfræðiálits aflað við val á kennslubókinni? Ef svo er, frá hvaða sérfræðingum?
     5.      Er kennslubókin notuð í grunnskólum annars staðar á Norðurlöndum? Ef svo er, í hvaða löndum?
     6.      Verður kennslubókin notuð áfram í grunnskólum í kjölfar þeirrar umræðu sem skapast hefur um bókina og viðbragða margra foreldra?


Skriflegt svar óskast.