Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 405  —  393. mál.




Beiðni um skýrslu


frá fjármála- og efnahagsráðherra um útflutningstekjur, skatta og útgjöld ríkisins eftir landshlutum.


Frá Ingibjörg Isaksen, Höllu Signýju Kristjánsdóttur, Líneik Önnu Sævarsdóttur, Þórarni Inga Péturssyni, Stefáni Vagni Stefánssyni, Jóhanni Páli Jóhannssyni, Loga Einarssyni, Berglindi Hörpu Svavarsdóttur, Njáli Trausta Friðbertssyni, Jakobi Frímanni Magnússyni, Jódísi Skúladóttur og Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að fjármála- og efnahagsráðherra flytji Alþingi skýrslu um skiptingu tekna, skatta og gjalda ríkisins eftir landshlutum síðustu tíu ár. Óskað er eftir heildstæðu yfirliti þar sem fram komi nákvæm útlistun á skiptingu útflutningstekna landsins, skatta ríkisins og gjalda þess eftir landshlutum og útgjalda ríkisins til sömu svæða á móti.

Greinargerð.

    Skipting útflutningstekna landsins, innheimta skatta og annarra gjalda sem renna í ríkissjóð annars vegar og útgjalda ríkissjóðs hins vegar eftir landshlutum hefur löngum verið áberandi umræðuefni. Af því tilefni óska flutningsmenn beiðninnar eftir heildstæðu yfirliti í skýrsluformi frá fjármála- og efnahagsráðherra sem sýni skiptingu útflutningstekna landsins á íbúa eftir landshlutum (Höfuðborgarsvæðið, Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland, Suðurland og Suðurnes) en einnig hvaðan tekjur ríkisins koma, frá hvaða tekjustofnum ríkisins, flokkað eftir atvinnuvegum og landsvæðum. Þá felur beiðnin í sér ósk um yfirlit yfir útgjöld ríkisins eftir málaflokkum milli landsvæða síðustu tíu ár. Flutningsmenn leggja áherslu á að varpað verði ljósi á hvort og þá með hvaða hætti mismunur sé á tekjum og útgjöldum ríkisins eftir landsvæðum. Þá er einnig óskað eftir því að skýrslan innihaldi eignir ríkisins eftir sömu flokkun, skráð matsverð þeirra, tekjur og kostnað vegna þeirra. Markmiðið með skýrslu þessari væri að greina umsvif ríkisins í hverjum landshluta fyrir sig, svo hægt sé að skoða hvaða tekjur ríkið hefur af hverjum landshluta fyrir sig og hver útgjöld ríkisins eru á sama svæði. Flutningsmenn óska eftir að sýnt verði fram á hlut hvers landshluta af vergri landsframleiðslu.