Ferill 416. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 437  —  416. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um frítekjumark á framfærsluuppbót örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.

Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.


     1.      Hver yrði árlegur heildarkostnaður ríkissjóðs af því að taka upp frítekjumark atvinnutekna gagnvart sérstakri uppbót á lífeyri vegna framfærslu hjá örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum sem næmi 60 þús. kr. á mánuði?
     2.      En ef frítekjumarkið væri 120 þús. kr. á mánuði?
     3.      En ef frítekjumarkið í báðum tilvikum tæki til allra tekna en ekki aðeins atvinnutekna?
     4.      Hver yrði heildarkostnaður ríkissjóðs af því að lækka skerðingarhlutfall tekna gagnvart sérstakri uppbót á lífeyri vegna framfærslu úr 65% í 45% og taka um leið upp 60 þús. kr. frítekjumark atvinnutekna gagnvart uppbótinni?


Skriflegt svar óskast.