Ferill 418. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 439  —  418. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um innviði við Jökulsárlón.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hver var aðdragandi þess að auglýst var eftir áhugasömum aðilum um uppbyggingu og rekstur innviða við Jökulsárlón?
     2.      Hvaða samráð átti ráðuneytið við Vatnajökulsþjóðgarð og Sveitarfélagið Hornafjörð um auglýsinguna og forsendur uppbyggingarinnar?
     3.      Hvernig verður séð til þess að val á rekstraraðila styðji við markmið Vatnajökulsþjóðgarðs um að efla heimabyggð?


Munnlegt svar óskast.