Ferill 455. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 495 —  455. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um kostnað við byggingu hjúkrunarheimila.

Frá Kristrúnu Frostadóttur.


     1.      Hver hefur byggingarkostnaður á fermetra við byggingu hjúkrunarheimila verið síðastliðna tvo áratugi, skipt eftir því hvort ríki, sveitarfélag eða aðrir framkvæmdaraðilar hafa verið byggingaraðilar?
     2.      Hver hefur byggingarkostnaður á hvert hjúkrunarrými við byggingu hjúkrunarheimila verið síðastliðna tvo áratugi, skipt eftir því hvort ríki, sveitarfélag eða aðrir framkvæmdaraðilar hafa verið byggingaraðilar?


Skriflegt svar óskast.