Ferill 490. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 543  —  490. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um stefnu í áfengis- og vímuvörnum.

Frá Halldóri Auðar Svanssyni.


     1.      Hvaða tímaramma hefur ráðuneytið sett sér um setningu nýrrar stefnu í áfengis- og vímuvörnum, sbr. svar ráðherra við fyrirspurn á þingfundi 24. október 2023?
     2.      Hvert er fyrirhugað verklag við setningu stefnunnar?
     3.      Hvaða áform eru um samráð við mótun stefnunnar?
     4.      Hver verða markmið stefnunnar og hvaða stefnumótun, innlend sem alþjóðleg, verður höfð til hliðsjónar við mótun hennar?


Skriflegt svar óskast.