Ferill 491. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 544  —  491. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um verndar- og orkunýtingaráætlun.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Stendur yfir endurskoðun á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011, að hluta eða í heild, í samræmi við ábendingu meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar, sbr. nefndarálit meiri hlutans á þingskjali 1210 í 332. máli 152. löggjafarþings?
     2.      Hvenær áformar ráðherra að þeirri vinnu ljúki?


Skriflegt svar óskast.