Ferill 485. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.

Þingskjal 559  —  485. mál.
Flutningsmenn.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.

Frá Eyjólfi Ármannssyni, Halldóru Mogensen, Bergþóri Ólasyni og Sigmari Guðmundssyni.


     1.      4. gr. falli brott.
     2.      3. mgr. 5. gr. falli brott.

Greinargerð.

    Lagt er til að 4. gr. frumvarpsins, sem kveður á um sérstakan skatt á allar húseignir, falli brott. Einnig er lagt til að 3. mgr. 5. gr., sem fjallar um gildistöku 4. gr., falli brott.