Ferill 533. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 618  —  533. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um mannanöfn.

Frá Magnúsi Árna Skjöld Magnússyni.


     1.      Hyggst ráðherra endurflytja frumvarp til laga um mannanöfn (þskj. 162, 161. mál) sem lagt var fram á 151. löggjafarþingi?
     2.      Hefur farið fram frekari vinna við frumvarpið í ráðuneytinu?


Munnlegt svar óskast.