Ferill 547. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 646  —  547. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um breytingar á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni.

Frá Bergþóri Ólasyni.


     1.      Hefur ráðuneytið unnið greiningu á því hvaða áhrif breytingar á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni (International Health Regulations, 2005) sem taka eiga gildi 1. desember 2023 fela í sér gagnvart núverandi regluverki á Íslandi?
     2.      Hverjar eru helstu breytingarnar sem verða?
     3.      Hafa verið gerðir fyrirvarar við einhverjar þeirra breytinga sem þar eru gerðar?
     4.      Getur ráðherra ábyrgst að breytingarnar feli ekki í sér skerðingu á stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga og skerði ekki fullveldisrétt íslenska ríkisins samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944?


Skriflegt svar óskast.