Ferill 553. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 665  —  553. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um dreifingu nektarmynda af ólögráða einstaklingum.

Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.


     1.      Eru verkferlar í grunnskólum um það hvernig skuli bregðast við ef ögrandi myndir eða nektarmyndir af börnum fara í dreifingu?
     2.      Hyggst ráðherra bregðast við því að upp undir 30% stúlkna í 10. bekk hafa sent af sér ögrandi mynd eða nektarmynd, eins og fram kemur í skýrslunni Ungt fólk 2022? Ef svo er, hvernig?


Skriflegt svar óskast.