Ferill 537. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 683 — 537. mál.
Frumvarp til laga
um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
(Eftir 2. umræðu, 5. des.)
I. KAFLI
Gildissvið, markmið og orðskýringar.
1. gr.
Gildissvið.
2. gr.
Markmið.
3. gr.
Orðskýringar.
1. Búseta: Þegar einstaklingur býr í hinu leigða húsnæði og á þar skráð lögheimili eða tímabundið aðsetur samkvæmt lögum um lögheimili og aðsetur.
2. Heimilismenn: Allir þeir sem búsettir eru í hinu leigða húsnæði og uppfylla jafnframt skilyrði a- og b-liðar 1. mgr. 9. gr.
3. Húsnæði: Íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt er til íbúðar hér á landi.
4. Húsnæðiskostnaður: Sá hluti leigufjárhæðar sem greiddur er fyrir leiguafnot af húsnæði, sbr. 14. gr.
5. Sértækur húsnæðisstuðningur: Mánaðarlegar greiðslur til lækkunar á húsnæðiskostnaði Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
6. Umsækjandi: Sá heimilismaður sem er aðili að leigusamningi um húsnæðið og sækir um sértækan húsnæðisstuðning á grundvelli þess samnings.
II. KAFLI
Stjórnsýsla.
4. gr.
Yfirstjórn.
5. gr.
Framkvæmdaraðili.
Kostnaður við framkvæmd laga þessara greiðist úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum hverju sinni.
Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur í reglugerð um málsmeðferð samkvæmt lögum þessum, þar á meðal um rafræna málsmeðferð.
6. gr.
Kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Úrskurðir úrskurðarnefndar velferðarmála um framkvæmd laga þessara eru endanlegir á stjórnsýslustigi og verður ekki skotið til æðra stjórnvalds.
7. gr.
Þagnarskylda.
III. KAFLI
Skilyrði sértæks húsnæðisstuðnings.
8. gr.
Mánaðarlegar greiðslur sértæks húsnæðisstuðnings.
9. gr.
Skilyrði sértæks húsnæðisstuðnings.
a. umsækjandi og aðrir þeir sem umsækjandi tilgreinir sem heimilismenn í umsókn hafi verið með lögheimili eða tímabundið aðsetur í Grindavíkurbæ 10. nóvember 2023 en verið gert að yfirgefa heimili sitt á grundvelli laga um almannavarnir,
b. umsækjandi og aðrir þeir sem umsækjandi tilgreinir sem heimilismenn í umsókn séu búsettir í hinu leigða húsnæði og eigi þar lögheimili eða tímabundið aðsetur samkvæmt lögum um lögheimili og aðsetur,
c. umsækjandi sé 18 ára eða eldri,
d. umsækjandi sé aðili að leigusamningi um hið leigða húsnæði sem skráður hefur verið í leiguskrá húsnæðisgrunns Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar,
e. fyrir liggi umboð umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri, til upplýsingaöflunar, sbr. 2. mgr. 11. gr.
Sértækur húsnæðisstuðningur samkvæmt lögum þessum verður ekki veittur:
a. teljist umsækjandi eða aðrir þeir sem umsækjandi tilgreinir sem heimilismenn í umsókn þegar til heimilismanna í öðru húsnæði utan Grindavíkurbæjar samkvæmt samþykktri umsókn um sértækan húsnæðisstuðning samkvæmt lögum þessum, sbr. þó 3. og 4. mgr.,
b. þegar einhver heimilismanna er eigandi viðkomandi húsnæðis; hið sama á við þegar eigandi húsnæðisins er lögaðili, enda hafi heimilismaður, maki hans eða sambúðarmaki þar ráðandi stöðu vegna eignar- eða stjórnunaraðildar; einstaklingur telst hafa ráðandi stöðu í þessu sambandi ef hann einn eða ásamt maka, sambúðarmaka, börnum, foreldrum, systkinum, öðrum nákomnum ættingjum eða heimilismanni, einum eða fleiri, á samtals 50% hlut eða meira í viðkomandi lögaðila,
c. þegar sértækur húsnæðisstuðningur samkvæmt lögum þessum er þegar greiddur vegna sama húsnæðis,
d. vegna húsnæðis sem fullnægir ekki kröfum um brunavarnir íbúðarhúsnæðis sem settar eru fram í lögum og reglugerðum.
Þrátt fyrir skilyrði a- og b-liðar 1. mgr. skal barn yngra en 18 ára sem hefur tímabundið aðsetur hjá fósturforeldrum vegna tímabundins fósturs samkvæmt barnaverndarlögum teljast til heimilismanna á heimili foreldra eða forsjáraðila þess. Hið sama á við þegar barn yngra en 18 ára hefur tímabundið aðsetur á heimavist eða námsgörðum enda eigi barnið skráð lögheimili hjá foreldri eða forsjáraðila, sbr. þó 4. mgr.
Búi foreldrar eða forsjáraðilar barns ekki saman skal barnið þrátt fyrir skilyrði b-liðar 1. mgr. teljast búsett á lögheimili sínu sem og í húsnæði þess foreldris eða forsjáraðila sem það á ekki lögheimili hjá enda dvelji barnið hjá foreldrinu eða forsjáraðilanum í að lágmarki 30 daga á ári samkvæmt samningi um umgengni sem sýslumaður hefur staðfest, sbr. 6. mgr. 46. gr. barnalaga, nr. 76/2003, úrskurði sýslumanns um umgengni skv. 47. gr. eða 47. gr. a sömu laga, dómi eða dómsátt. Telst barnið þá sem heimilismaður hjá báðum foreldrum sínum eða forsjáraðilum til 18 ára aldurs.
Hafi heimilismaður, einn eða fleiri, flutt aftur á heimili sitt í Grindavíkurbæ í kjölfar afléttingar fyrirmæla stjórnvalda um rýmingu fyrir lok gildistíma stuðningsúrræðis laga þessara, sbr. 4. mgr. 15. gr., er Húsnæðis- og mannvirkjastofnun heimilt, þrátt fyrir ákvæði b-liðar 1. mgr. um búsetu, að greiða sértækan húsnæðisstuðning vegna hins leigða húsnæðis allt til loka gildistíma stuðningsúrræðisins að því marki sem leigusamningur er enn í gildi og skilyrði laga þessara uppfyllt að öðru leyti.
IV. KAFLI
Umsókn um sértækan húsnæðisstuðning og upplýsingaskylda.
10. gr.
Umsókn um sértækan húsnæðisstuðning.
Umsóknir skulu afgreiddar þegar allar nauðsynlegar upplýsingar og gögn hafa borist. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að synja umsókn um sértækan húsnæðisstuðning hafi nauðsynlegar upplýsingar og gögn ekki borist innan 45 daga frá þeim degi er umsóknin barst stofnuninni.
Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur í reglugerð um umsóknir um sértækan húsnæðisstuðning, hvort sem er á rafrænu formi eða á pappír, hvernig standa skuli að undirskrift rafrænna umsókna, hvaða upplýsingar skuli koma fram í umsóknum og hvaða gögn skuli fylgja þeim, hvernig standa skuli að skilum á gögnum sem fylgja skulu rafrænni umsókn og gildistíma umsókna.
Umsóknir um stuðning samkvæmt lögum þessum skulu berast Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í síðasta lagi 31. maí 2024. Hafi umsókn ekki borist fyrir það tímamark fellur niður réttur til stuðnings á grundvelli laga þessara.
11. gr.
Upplýsingaskylda umsækjanda og annarra heimilismanna.
Umsækjandi og aðrir heimilismenn, 18 ára og eldri, skulu veita skriflegt umboð fyrir því að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun afli nauðsynlegra upplýsinga og gagna til að afgreiða umsókn um sértækan húsnæðisstuðning og framfylgja lögum þessum að öðru leyti.
Umsækjandi skal upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans eða heimilismanna eða öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á rétt hans til sértæks húsnæðisstuðnings samkvæmt lögum þessum á þeim tíma sem hann fær greiddan sértækan húsnæðisstuðning.
12. gr.
Heimild til upplýsingaöflunar.
Þeir aðilar sem tilgreindir eru í 1. mgr. skulu láta Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í té upplýsingar sem óskað hefur verið eftir en lagaákvæði um þagnarskyldu takmarka ekki skyldu til að veita upplýsingarnar. Upplýsingar og gögn sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun óskar eftir og unnt er að láta í té skal veita án endurgjalds og á því formi sem óskað er, sbr. þó 3. mgr. 19. gr. laga um skráningu einstaklinga, nr. 140/2019.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun getur aflað upplýsinga skv. 1. mgr. rafrænt eða á annan hátt sem stofnunin ákveður. Tryggja skal að upplýsingaöflun og vinnsla persónuupplýsinga gangi ekki lengra en þörf krefur til að unnt sé að framfylgja lögum þessum.
Telji umsækjandi eða annar heimilismaður upplýsingar sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun aflar frá aðilum sem tilgreindir eru í 1. mgr. rangar skal viðkomandi tilkynna stofnuninni um það og leggja fram gögn því til staðfestingar.
V. KAFLI
Útreikningur sértæks húsnæðisstuðnings.
13. gr.
Fjárhæðir sértæks húsnæðisstuðnings.
Fjöldi heimilismanna | Hámarksfjárhæð sértæks húsnæðisstuðnings |
1 | 150.000 kr. |
2 | 198.000 kr. |
3 | 232.500 kr. |
4 eða fleiri | 252.000 kr. |
Breyting á fjölda heimilismanna skv. 1. mgr. hefur áhrif á rétt til sértæks húsnæðisstuðnings frá og með næstu mánaðamótum á eftir.
Hefjist leigutími síðar en fyrsta dag hvers mánaðar eða ljúki fyrir síðasta dag mánaðar skal réttur til sértæks húsnæðisstuðnings vegna þess mánaðar vera hlutfallslegur miðað við heilan mánuð þannig að hann miðist við fjölda daga í mánuðinum sem falla innan leigutíma sem hlutfall af heildarfjölda daga í mánuðinum.
14. gr.
Áhrif húsnæðiskostnaðar á fjárhæðir sértæks húsnæðisstuðnings.
Með húsnæðiskostnaði í lögum þessum er átt við þann hluta leigufjárhæðar sem greiddur er fyrir leiguafnot af húsnæði. Aðrar greiðslur og kostnaðarþættir sem leigjanda ber að greiða samkvæmt samningi eða lögum, svo sem fyrir hita, vatn, rafmagn, hússjóð, viðhald o.fl., teljast ekki til húsnæðiskostnaðar í skilningi laga þessara.
VI. KAFLI
Greiðsla sértæks húsnæðisstuðnings.
15. gr.
Greiðsla sértæks húsnæðisstuðnings.
Sértækur húsnæðisstuðningur kemur til greiðslu í fyrsta skipti fyrsta dag næsta almanaksmánaðar eftir að réttur til stuðnings hefur verið staðreyndur og tekur til þess hluta almanaksmánaðar eða hluta úr almanaksmánuði, hafi leigutími hafist síðar en fyrsta dag almanaksmánaðar, þegar leigutími er hafinn samkvæmt leigusamningi.
Sértækur húsnæðisstuðningur skal falla niður frá og með næstu mánaðamótum eftir að skilyrði laga þessara eru ekki lengur uppfyllt, sbr. þó 3. mgr. 16. gr. Sértækur húsnæðisstuðningur skal þó falla niður frá og með þeim degi þegar leigusamningur fellur úr gildi.
Heimilt er að greiða sértækan húsnæðisstuðning samkvæmt lögum þessum vegna húsnæðiskostnaðar sem fellur til vegna leigu húsnæðis á tímabilinu 10. nóvember 2023 til og með 29. febrúar 2024.
16. gr.
Heimilismaður verður 18 ára.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að fresta greiðslum sértæks húsnæðisstuðnings tímabundið í allt að 60 daga frá og með fyrsta degi annars almanaksmánaðar eftir að heimilismaður varð 18 ára þar til umboð hans skv. 1. mgr. liggur fyrir. Stofnunin skal tilkynna umsækjanda að lágmarki 30 dögum áður en heimilismaður verður 18 ára að fyrirhugað sé að halda eftir greiðslum berist ekki umboð heimilismanns skv. 1. mgr.
Berist Húsnæðis- og mannvirkjastofnun ekki umboð heimilismanns skv. 1. mgr. innan þeirra tímamarka sem gilda um frestun greiðslna skv. 2. mgr. skal réttur umsækjanda til sértæks húsnæðisstuðnings falla niður.
VII. KAFLI
Eftirlit og endurreikningur sértæks húsnæðisstuðnings.
17. gr.
Eftirlit.
Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur í reglugerð um framkvæmd eftirlits.
18. gr.
Frestun greiðslna.
Komist Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að því að umsækjandi hafi átt rétt á þeirri greiðslu, að hluta eða öllu leyti, sem haldið var eftir skv. 1. mgr. ber stofnuninni að greiða þá fjárhæð í síðasta lagi næsta greiðsludag skv. 1. mgr. 15. gr. ásamt vöxtum fyrir það tímabil sem féð var í vörslu stofnunarinnar. Skulu vextirnir vera jafnháir vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001.
Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. fer skv. 16. gr. um meðferð máls þegar heimilismaður verður 18 ára á því tímabili þegar greiddur er sértækur húsnæðisstuðningur.
19. gr.
Leiðrétting á sértækum húsnæðisstuðningi.
Verði ofgreiddur sértækur húsnæðisstuðningur ekki innheimtur skv. 1. mgr. fer um innheimtu hans skv. 3. gr. laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019. Ráðherra getur þó falið sérstökum innheimtuaðila að annast innheimtu. Heimilt er að skuldajafna ofgreiddum sértækum húsnæðisstuðningi samkvæmt lögum þessum á móti inneign umsækjanda vegna ofgreiddra skatta eða barnabóta samkvæmt lögum um tekjuskatt. Ráðherra er fer með tekjuöflun ríkisins er heimilt að setja í reglugerð nánari reglur um skuldajöfnun og forgangsröð.
Hafi umsækjandi ekki fengið sértækan húsnæðisstuðning sem honum bar eða fengið lægri sértækan húsnæðisstuðning en honum bar skal Húsnæðis- og mannvirkjastofnun greiða umsækjanda þá fjárhæð sem vangreidd var ásamt vöxtum fyrir það tímabil sem féð var í vörslu stofnunarinnar. Skulu vextirnir vera jafnháir vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001. Hafi sértækur húsnæðisstuðningur verið vangreiddur vegna skorts á upplýsingum frá umsækjanda falla vextir niður.
Ákvarðanir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um endurkröfu ofgreidds sértæks húsnæðisstuðnings skv. 1. mgr. eru aðfararhæfar án undangengins dóms. Hið sama á við um úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála um endurkröfu ofgreidds sértæks húsnæðisstuðnings.
Ofgreiddur sértækur húsnæðisstuðningur sem endurgreiddur er samkvæmt lögum þessum skal renna í ríkissjóð.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari reglur um innheimtu á ofgreiddum sértækum húsnæðisstuðningi, undanþágur frá innheimtu ofgreidds sértæks húsnæðisstuðnings og afskriftir krafna.
Endanlegt uppgjör Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á greiðslu á húsnæðisstuðningi skal liggja fyrir 90 dögum eftir að lokagreiðsla barst umsækjanda.
20. gr.
Sértæks húsnæðisstuðnings aflað á sviksamlegan hátt.
VIII. KAFLI
Ýmis ákvæði.
21. gr.
Upplýsingagjöf til sveitarfélaga og slökkviliðs.
Fái Húsnæðis- og mannvirkjastofnun við framkvæmd laga þessara upplýsingar um búsetu fólks í húsnæði sem leigt er til íbúðar og fullnægir ekki kröfum um brunavarnir íbúðarhúsnæðis sem settar eru fram í lögum og reglugerðum, sbr. d-lið 2. mgr. 9. gr., skal stofnunin tilkynna slökkviliði hlutaðeigandi sveitarfélags þar um.
22. gr.
Sértækur húsnæðisstuðningur sem ekki hefur komið til útgreiðslu.
23. gr.
Skattleysi og áhrif á aðrar greiðslur.
Sértækur húsnæðisstuðningur telst ekki til tekna við ákvörðun greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar eða lögum um félagslega aðstoð.
24. gr.
Reglugerðarheimild.
25. gr.
Gildistaka.
26. gr.
Breytingar á öðrum lögum.
1. Húsaleigulög, nr. 36/1994:
a. 35. gr. laganna verður svohljóðandi:
Nú verður leigjandi fyrir afnotamissi af hinu leigða húsnæði um lengri tíma vegna opinberra fyrirmæla um brottflutning fólks af hættusvæði þar sem húsnæðið stendur og skal leigusali þá bæta leigjanda það með hlutfallslegum afslætti af leigugjaldi vegna þess tíma sem afnotamissirinn varði eða á annan hátt sem aðilar koma sér saman um. Verði aðilar ekki ásáttir um bætur eða afslátt geta þeir leitað álits úttektaraðila, sbr. XIV. kafla, en heimilt er aðilum að bera álit hans undir kærunefnd húsamála, sbr. 85. gr. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skal útbúa staðlað tilkynningareyðublað um afslátt af leigu vegna afnotamissis.
b. Í stað orðanna „eða vegna skerðingar á afnotarétti skv. 2. mgr. 21. gr.“ í 2. mgr. 36. gr. laganna kemur: vegna skerðingar á afnotarétti skv. 2. mgr. 21. gr. eða vegna afnotamissis skv. 35. gr.
c. Við 1. mgr. 60. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Ef leigjandi missir afnot af hinu leigða húsnæði um lengri tíma vegna opinberra fyrirmæla um brottflutning fólks af hættusvæði þar sem húsnæðið stendur. Skal leigjandi þá rýma leiguhúsnæðið án ástæðulauss dráttar þegar fyrirmælunum hefur verið aflétt og eigi síðar en innan sjö daga frá afléttingu þeirra. Hafi húsnæðið ekki verið rýmt innan þess frests skal leigusali eiga rétt á greiðslu leigu vegna þess tíma sem líður frá lokum frestsins þar til leiguhúsnæðið hefur verið rýmt.
d. Við 1. mgr. 61. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Ef leigjandi missir afnot af hinu leigða húsnæði um lengri tíma vegna opinberra fyrirmæla um brottflutning fólks af hættusvæði þar sem húsnæðið stendur. Skal leigjandi þá rýma leiguhúsnæðið án ástæðulauss dráttar þegar fyrirmælunum hefur verið aflétt og eigi síðar en innan sjö daga frá afléttingu þeirra. Hafi húsnæðið ekki verið rýmt innan þess frests skal leigusali eiga rétt á greiðslu leigu vegna þess tíma sem líður frá lokum frestsins þar til leiguhúsnæðið hefur verið rýmt.
2. Lög um húsnæðisbætur, nr. 75/2016: Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Heimilt er að greiða húsnæðisbætur samkvæmt lögum þessum vegna húsnæðis í Grindavíkurbæ enda þótt umsækjandi og aðrir heimilismenn séu ekki búsettir í hinu leigða íbúðarhúsnæði vegna fyrirmæla stjórnvalda um rýmingu á grundvelli laga um almannavarnir vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Heimilt er að greiða húsnæðisbætur vegna íbúðarhúsnæðis enda þótt sértækur húsnæðisstuðningur samkvæmt lögum um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ sé greiddur samtímis vegna sama húsnæðis enda séu húsnæðisbætur ekki greiddar vegna sömu heimilismanna og sértækur húsnæðisstuðningur. Einstaklingar sem sértækur húsnæðisstuðningur er greiddur vegna teljast þá ekki til heimilismanna í skilningi laga þessara.
3. Lög um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018: Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
a. (I.)
Skráning aðseturs innan lands er heimil þeim einstaklingum sem höfðu lögheimili í Grindavíkurbæ hinn 9. nóvember 2023 og þurftu að yfirgefa heimili sitt samkvæmt ákvörðun yfirvalda hinn 10. nóvember 2023.
Skráningin gildir þar til lögreglustjóri tilkynnir Þjóðskrá Íslands að skilyrði hennar séu ekki lengur fyrir hendi. Einstaklingum er þó heimilt að halda aðsetursskráningu í allt að eitt ár frá tilkynningu lögreglustjóra.
Skráning aðseturs samkvæmt þessari grein nær til húsnæðis skv. 3. mgr. 2. gr. en einnig til skráningar í fjöldahjálparstöðvum, frístundabyggð og atvinnuhúsnæði.
b. (II.)
Skráning aðseturs Grindvíkinga í desember 2023 samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I gildir afturvirkt til 9. nóvember 2023.
Ákvæði til bráðabirgða.