Ferill 349. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 753  —  349. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á vopnalögum, nr. 16/1998 (skotvopn, skráning, varsla, eftirlit o.fl.).

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.

    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá dómsmálaráðuneyti, embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum, embætti lögreglustjórans á Vesturlandi, embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, Skotveiðifélagi Íslands, Skotfélaginu Markviss, félagasamtökunum Gunnloga, Skotíþróttasambandi Íslands og sýslumannaráði. Þá mættu tveir einstaklingar á fund nefndarinnar, Þórhallur Borgarsson og Eymundur Sigurðsson vopnasafnari.
    Nefndinni bárust 22 umsagnir sem eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis. Málið var áður lagt fram á 153. löggjafarþingi ( 946. mál) og hafði nefndin einnig hliðsjón af umsögnum sem bárust þá. Einnig barst nefndinni minnisblað frá dómsmálaráðuneyti.
    Með frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á vopnalögum, nr. 16/1998, þannig að ekki verði lengur veittar undanþágur frá banni við innflutningi á hálfsjálfvirkum og sjálfvirkum skotvopnum á grundvelli þess að um safnvopn sé að ræða. Þá verði reglum um skráningar skotvopna breytt þannig að ávallt sé tryggt að skráður verði eigandi eða ábyrgðarmaður hvers vopns. Jafnframt er lagt til að skotvopn verði geymd í sérútbúnum skáp, sem og að ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/555 um eftirlit með öflun og eign vopna verði innleidd í íslenskan rétt á grundvelli Schengen-samstarfsins.

Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
    Frumvarpið var samið í dómsmálaráðuneytinu að undangengnu samráði við embætti ríkislögreglustjóra og þrjú önnur lögregluembætti, líkt og fram kemur í greinargerð. Með frumvarpinu er ætlunin m.a. að bregðast við ábendingum sem fram komu í áhættumatsskýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá 2019 um skipulagðra brotastarfsemi á Íslandi og ábendingum í skýrslu þjóðaröryggisráðs frá 2021 um mikla aukningu á innflutningi hálfsjálfvirkra og sjálfvirkra skotvopna á árunum 2018–2021 á grundvelli þess að um safnvopn sé að ræða. Að mati meiri hlutans eru með frumvarpinu lagðar til ýmsar nauðsynlegar og tímabærar breytingar á III. kafla vopnalaga, um meðferð skotvopna og skotfæra, í því skyni að takmarka innflutning slíkra vopna, auk þess sem nauðsynlegt er að lögfesta ákvæði tilskipunar (ESB) 2021/555 til að standast skuldbindingar samkvæmt Schengen-samningnum. Þá kemur fram í greinargerð með frumvarpinu, sem og í minnisblaði dómsmálaráðuneytis, dags. 30. nóvember 2023, að til standi að endurskoða vopnalögin í heild sinni á næstu misserum en fram að því sé nauðsynlegt að gera ákveðnar afmarkaðar breytingar á lögunum í þeim tilgangi að gera regluverkið skýrara og færa það til samræmis við ákvæði tilskipunarinnar.

Útgáfa og endurheimt skotvopnaleyfis skv. 2. mgr. 13. gr. vopnalaga.
    Nokkrir umsagnaraðilar, þar á meðal embætti lögreglustjórans á Vesturlandi, gagnrýndu í umsögnum sínum núgildandi ákvæði 2. mgr. 13. gr. vopnalaga sem er að finna óbreytt í 2. mgr. 10. gr. frumvarpsins. Einkum var gagnrýnd upptalning í síðari málslið þeirrar málsgreinar þar sem tilteknir brotaflokkar eru taldir upp en hafi menn gerst brotlegir við þá og refsing farið fram úr sektum eða fangelsi í allt að 6 mánuði kemur það í veg fyrir að lögreglustjóra sé heimilt að veita umsækjanda skotvopnaleyfi eða endurnýja það. Fundið er að því í umsögnum að ákvæðið sé of strangt og komi í veg fyrir að menn sem fyrir löngu hafi bætt ráð sitt geti fengið útgefið eða endurnýjað skotvopnaleyfi. Í minnisblaði dómsmálaráðuneytis er bent á að með frumvarpinu sé eingöngu verið að færa ákvæðið til í lögunum, úr 13. gr. í 12. gr. laganna, en ekki séu gerðar neinar efnislegar breytingar á því. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að taka mið af framangreindum athugasemdum við fyrirhugaða heildarendurskoðun laganna.

Nauðsynlegir íhlutir skotvopna skv. 1. gr. frumvarpsins.
    Fyrir nefndinni kom fram að skilgreiningu skorti í frumvarpið á því hvað flokkist sem nauðsynlegir íhlutir, til að mynda í 4. gr. þess, og jafnframt vangaveltur um hvort t.d. hnífar sem seldir séu í verslunum geti flokkast sem slíkir íhlutir. Í minnisblaði sínu bendir dómsmálaráðuneytið á að ítarlega skilgreiningu á því hvað teljist vera nauðsynlegir íhlutir skotvopna sé að finna í 1. gr. frumvarpsins og þykir sú skilgreining fullnægjandi að mati meiri hlutans. Jafnframt er vakin athygli á því að í c-lið 5. gr. frumvarpsins, sem og í skýringum við ákvæðið í greinargerð, kemur fram að sé nauðsynlegur íhlutur of smár til að merkja hann í samræmi við það sem þar greinir skuli hann a.m.k. merktur með raðnúmeri, stafakóða eða stafrænum kóða.

Veiting, endurnýjun og afturköllun skotvopnaleyfa.
    Nefndin fjallaði nokkuð um útgáfu og endurnýjun skotvopnaleyfa og um það skilyrði að vera andlega heilbrigður og að öðru leyti hæfur til að fara með slík vopn, sbr. c-lið 1. mgr. 10. gr. frumvarpsins. Líkt og fram kemur í skýringum við 10. gr. frumvarpsins er með c-lið ákvæðisins bætt við heimild fyrir lögreglustjóra til að líta til brotaferils samkvæmt sakaskrá við mat á því hvort einstaklingur teljist vera til þess hæfur að fara með skotvopn og jafnframt að kanna málaskrá lögreglu sem geti verið mikilvægt í ákveðnum tilvikum þar sem nauðsynlegt getur reynst að kalla eftir læknisvottorði til að kanna nánar hæfi einstaklings til að fara með skotvopn.
    Meiri hluti nefndarinnar beinir því til ráðuneytisins við fyrirhugaða heildarendurskoðun laganna að kanna hvort tilefni sé til þess að ráðherra mæli nánar fyrir um þau atriði sem koma eigi fram í læknisvottorði sem fylgja skal með umsókn um skotvopnaleyfi.
    Þá kemur fram í 34. gr. núgildandi vopnalaga að leyfisveitandi geti hvenær sem er afturkallað leyfi samkvæmt lögunum, svo sem ef ekki teljast lengur vera fyrir hendi nauðsynleg skilyrði fyrir því eða hafi leyfishafi ekki farið að settum fyrirmælum. Með frumvarpinu er lagt til í 1. mgr. 25. gr. að í stað orðsins „leyfisveitandi“ komi orðið „lögreglustjóri“. Í skýringum við greinina segir að það sé gert í þeim tilgangi að ekki aðeins sá lögreglustjóri sem hafi veitt leyfið geti afturkallað það heldur verði hægt að afturkalla leyfi óháð því hvar það var veitt. Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum gerði athugasemd í umsögn sinni við að með þessari breytingu yrði hlutverk hvers og eins lögreglustjóraembættis ekki nægilega skýrt, til að mynda þegar kæmi að veitingu skotvopnaleyfis og afturköllun slíks leyfis. Fólk gæti þá gengið á milli embætta í þeirri von að fá útgefið skotvopnaleyfi hjá einu embætti eftir að hafa fengið synjun um útgáfu þess hjá öðru, auk þess sem þetta fyrirkomulag gæti valdið misskilningi á milli embætta.
    Í minnisblaði sínu áréttar dómsmálaráðuneytið að með frumvarpinu hafi verið ákveðið að breyta núgildandi fyrirkomulagi þannig að hægt sé að taka mál er varði afturköllun skotvopnaleyfa fyrir hjá hvaða lögregluembætti sem er en með því móti mætti til að mynda beina umsóknum um skotvopnaleyfi og afturköllun þeirra til stærri embætta, eins og gert hefði verið varðandi leyfisveitingar, þar sem meiri reynsla og þekking væri fyrir á málaflokknum. Meiri hlutinn telur mikilvægt að hægt verði að taka fyrir bæði umsóknir um skotvopnaleyfi og afturköllun þeirra með bæði skjótum og skilvirkum hætti og að ákveðinn sveigjanleiki sé fyrir hendi í kerfinu hvað slíkar leyfisveitingar og afturkallanir varðar. Að mati meiri hlutans er þessi breyting því til bóta.

Heimild ráðherra til að setja ákvæði í reglugerð um skipun stjórnar viðurkenndra skotfélaga.
    Með 2. mgr. 15. gr. frumvarpsins er lagt til að ráðherra setji í reglugerð ákvæði um hvað teljist vera viðurkennt skotfélag og nánari skilyrði um m.a. stjórn, ábyrgð og meðlimi slíkra félaga. Fyrir nefndinni var fjallað um það hvort slík skilyrði kynnu að varða 74. gr. stjórnarskrárinnar um félagafrelsi. Meiri hlutinn bendir á að viðurkenndum skotfélögum er falið tiltekið hlutverk á grundvelli laganna að fullnægðum tilgreindum kröfum. Þau hafa m.a. heimild til að leyfa einstaklingum sem eru ekki með skotvopnaleyfi og einstaklingum undir 20 ára aldri að nota skotvopn undir stjórn skotstjóra. Með vísan til þessa telur meiri hlutinn æskilegt að mæla nánar fyrir um hvaða skilyrði viðurkennd skotfélög skuli uppfylla í reglugerð, m.a. um skipan stjórnar, en það takmarki þó ekki rétt annarra skotfélaga til að starfa án þess að vera skilgreind sem viðurkennd skotfélög samkvæmt lögunum með þeim heimildum og skilyrðum sem því fylgja.

Varsla skotvopna í sérútbúnum vopnaskápum og vöktuðu húsnæði.
    Í 23. gr. vopnalaga er ákvæði um vörslur skotvopna en í 2. mgr. 23. gr. kemur fram að þegar skotvopn og skotfæri séu ekki í notkun skuli skotvopn annars vegar og skotfæri hins vegar geymd í aðskildum og læstum hirslum. Í 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 787/1998 um skotvopn, skotfæri o.fl. er mælt fyrir um að eigi einstaklingur fleiri en þrjú skotvopn sé honum skylt að geyma þau í sérútbúnum vopnaskáp sem samþykktur sé af lögreglustjóra. Í 20. gr. frumvarpsins er lagt til að við lögin bætist ákvæði um að það sé skylda allra sem eigi skotvopn, nauðsynlega íhluti, skotfæri eða eftirlíkingar skotvopna að hafa yfir sérútbúnum vopnaskáp að ráða, sbr. nánari skilgreiningu í 2. mgr. 20. gr. frumvarpsins á slíkum skápum. Að mati margra umsagnaraðila er þessi breyting jákvæð og um margt tímabær þar sem nú sé lögfest skylda skotvopnaeigenda að geyma vopn sín í sérútbúnum vopnaskáp þegar við fyrstu skotvopnaeign. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið og telur breytinguna til þess fallna að stuðla að auknu öryggi almennings og varna því að skotvopn komist í rangar hendur.
    Þá er í 20. gr. frumvarpsins mælt fyrir um að í 4. mgr. 23. gr. laganna verði kveðið á um að skotvopn í eigu skotfélaga skuli varðveitt í húsnæði sem búið sé þjófavörn og vaktað af viðurkenndu öryggisfyrirtæki. Hið sama eigi við um safnvopn. Nokkur gagnrýni kom fram á þetta ákvæði af hálfu umsagnaraðila sem töldu að ákvæðið gerði t.d. skotfélögum úti á landi erfitt fyrir þar sem vottuð öryggisfyrirtæki væru ekki starfrækt á öllum landsvæðum og ákvæðið því óþarflega íþyngjandi. Í minnisblaði ráðuneytisins er áréttað að í greinargerð með frumvarpinu komi fram að öryggisfyrirtæki séu alltaf á vakt þrátt fyrir að vera staðbundin og verði eigandi skotvopns þess ekki var að kerfi fari í gang geti fyrirtækið þegar í stað haft samband við hann eða lögreglu ef svo beri undir.
    Með vísan til þeirra röksemda sem raktar eru í frumvarpinu tekur meiri hlutinn undir það með ráðuneytinu að ákvæðið stuðli að auknu öryggi og telur þessa breytingu vera til bóta. Þá bendir meiri hlutinn á að í síðasta málslið 6. mgr. 20. gr. frumvarpsins kemur fram að ráðherra sé heimilt að setja í reglugerð skilyrði um hvað teljist vera viðurkennt öryggisfyrirtæki skv. 4. mgr. og um undanþágu frá því að vopn skuli vöktuð af slíku fyrirtæki. Þannig þykir að mati meiri hlutans ljóst að ákvæðið sé ekki fortakslaust og mögulegt verði að fá undanþágur frá því. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að hafa hliðsjón af framangreindum athugasemdum við nánari útfærslu reglugerðarákvæða þar sem skilyrði um undanþágu frá vöktun slíkra vottaðra öryggisfyrirtækja verði til tekin.

Ráðstöfun skotvopna úr dánarbúum.
    Í núgildandi vopnalögum er mælt fyrir um það í 16. gr. að skotvopni, sem sé hluti dánarbús, skuli innan tólf mánaða frá andláti leyfishafa ráðstafað til aðila sem hafi leyfi til að eiga slíkt skotvopn. Í 14. gr. frumvarpsins er lagt til að gerð verði breyting á ákvæðinu í þá veru að í stað þess að dánarbúum sé heimilt að hafa skotvopn í vörslum sínum sé gerð krafa um að slíkum vopnum verði ráðstafað tafarlaust til aðila sem hefur leyfi til að eiga eða versla með slík vopn. Að mati meiri hlutans er þessi breyting til bóta, enda til þess fallin að stuðla að auknu öryggi með því að skotvopn sem fyrirfinnast í dánarbúum komist síður í rangar hendur.

Lækkun aldurstakmarks skotíþróttaiðkenda.
    Fjölmargir umsagnaraðilar, og þá einkum skotfélögin, gerðu athugasemdir við aldurstakmark skotíþróttaiðkenda og telja það of hátt hér á landi. Það geri að verkum að íslenskir unglingar sem æfa skotíþróttir standi langt að baki jafnöldrum sínum í nágrannalöndunum þegar að æfingum og keppni kemur. Í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins kemur fram að hingað til hafi verið miðað við að börn þurfi að hafa náð 15 ára aldri til að fá að stunda æfingar og keppni í yngri flokkum. Þá er áréttað að með frumvarpinu sé lagt til að við gerð reglugerðar verði horft til nágrannaríkja þegar kemur að því að setja viðmið um aldur til að fá æfa og keppa í skotfimi og þannig veitt heimild til að lækka þann aldur sem börn þurfi að hafa náð til að stunda þá íþrótt. Meiri hlutinn telur fram komnar ábendingar hvað þetta varðar gagnlegar og beinir því til ráðuneytisins að hafa þær til hliðsjónar við setningu reglugerðar um þetta efni með hliðsjón af því sem tíðkast í nágrannalöndum, sbr. heimild þess efnis í 3. mgr. 15. gr. frumvarpsins.

Heildarendurskoðun vopnalaga.
    Umsagnaraðilar voru að mörgu leyti jákvæðir í garð frumvarpsins en þó komu fram allnokkrar athugasemdir og tillögur til breytinga. Margar þeirra voru þess eðlis að ljóst er að þær falla ekki undir þau ákvæði laganna sem hér eru til endurskoðunar og lögð er til breyting á með frumvarpinu. Má þar nefna ákall í umsögnum bogfimideildar Tindastóls og Bogveiðifélags Íslands um rýmri heimildir til bogaeignar. Bogar og hinar ýmsu tegundir þeirra falla undir V. kafla laganna, um meðferð annarra vopna, sem bíður nánari endurskoðunar. Hið sama gildir um IV. kafla laganna, um meðferð sprengiefnis, en embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum kom með tvær ábendingar um úrbætur á þeim kafla í umsögn sinni. Auk þess gerði embættið athugasemdir við notkun ýmissa hugtaka í 21. gr. laganna, sem lúta m.a. að skilgreiningu á því hvað felist í að vera undir áhrifum vímugjafa í skilningi 2. mgr. 21. gr., og benti á að tímabært væri að uppfæra hugtakanotkun til samræmis við það sem gerist t.d. í umferðarlögum eða í lögum um loftferðir.
    Þá gagnrýndu ýmsir að lögin væru ekki endurskoðuð í heild sinni og að mælt væri fyrir um of mörg atriði í reglugerð. Líkt og fram hefur komið lúta þær breytingar sem gera á með frumvarpi þessu fyrst og fremst að afmörkuðum þáttum laganna, svo sem skráningu, vörslu og eftirliti með skotvopnum sem og takmörkunum á innflutningi þeirra, auk innleiðingar á fyrrgreindri tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins. Í minnisblaði dómsmálaráðuneytis er áréttað að um sé að ræða málefnasvið þar sem þróun í iðnaði og tækni geti breyst mikið á skömmum tíma og nauðsynlegt sé að geta brugðist við slíkum breytingum með setningu reglugerðarákvæða.
    Í umsögnum, m.a. frá Skotveiðifélagi Íslands, var vísað til þess að með frumvarpinu væri gengið lengra en gert er í tilskipun (ESB) 2021/555 um eftirlit með öflun og eign vopna en þar væri til að mynda ekki kveðið á um leyfisskyldu vegna eignar á eftirlíkingum skotvopna eða á varanlega óvirkum skotvopnum. Þá gengi frumvarpið jafnframt lengra og væri strangara en löggjöf í nágrannalöndum okkar. Í minnisblaði ráðuneytisins er bent á að við nánari athugun á tilskipuninni hafi komið í ljós að ekki hafi verið nægjanlega skilgreint í lögum hvað óvirk skotvopn væru og hafi það valdið misskilningi í framkvæmd. Þess vegna hafi skilgreiningu á því hvaða vopn teljist vera varanlega óvirk skotvopn verið bætt við 1. gr. frumvarpsins. Þá sé óheimilt samkvæmt gildandi lögum að eiga eftirlíkingar skotvopna en með frumvarpinu sé lagt til að slíkt geti verið heimilt að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Að mati ráðuneytisins er ekki fyllilega ljóst í ábendingum umsagnaraðila að hvaða leyti frumvarpið sé strangara en tíðkist í öðrum löndum. Í því sambandi áréttað að eitt meginmarkmið frumvarpsins sé einmitt að gera skýrari ákvæði um hver réttindi og skyldur einstaklinga sem vilja eiga og nota vopn séu, til að mynda um hvenær þeim sé heimilt að lána vopn eða fá lánuð vopn og hvernig einstaklingum beri að geyma vopn sín.
    Að mati meiri hlutans eru athugasemdir umsagnaraðila sem snerta á hinum ýmsu þáttum vopnalaga um margt gagnlegar og telur meiri hlutinn að þar kunni úrbóta að vera þörf í einhverjum tilvikum. Á hinn bóginn tekur meiri hlutinn undir með ráðuneytinu að margar þeirra séu þess eðlis að réttara sé að tekið verði mið af þeim við heildarendurskoðun laganna, enda snerti þær ekki þá þætti laganna sem voru endurskoðaðir að þessu sinni. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að við heildarendurskoðun vopnalaga verði því tekið mið af þessum athugasemdum eftir því sem talin verður þörf á. Að öðru leyti er meiri hlutinn sammála ráðuneytinu um að með frumvarpinu sé ráðist í að gera brýnar breytingar á lögunum sem áríðandi sé að taki gildi sem fyrst svo að reynsla fáist af þeim og telur þær jafnframt almennt til þess fallnar að auka skýrleika laganna sem og reglugerðarheimilda með stoð í lögunum.

Breytingartillögur meiri hlutans.
Bann við innflutningi á hálfsjálfvirkum og sjálfvirkum skotvopnum sem safnvopnum.
    Í núgildandi vopnalögum er lagt almennt bann við því í a–d-lið 4. mgr. 5. gr. laganna að flytja inn eða framleiða sjálfvirkar eða hálfsjálfvirkar skammbyssur, sjálfvirka eða hálfsjálfvirka riffla, sjálfvirkar haglabyssur og hálfsjálfvirkar eða handhlaðnar fjölskota haglabyssur. Í 2. málsl. 7. mgr. 5. gr. laganna er síðan mælt fyrir um undanþágu frá þessu banni með því að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu geti, að fenginni umsögn ríkislögreglustjóra, heimilað innflutning slíkra vopna hafi þau óvírætt söfnunargildi vegna aldurs þeirra eða tengsla við sögu landsins. Í f-lið 5. gr. frumvarpsins er lagt til að framangreint undanþáguákvæði verði fellt brott en í staðinn verði bætt við 4. mgr. 5. gr. laganna tveimur nýjum málsliðum þess efnis að þrátt fyrir a- og b-lið 4. mgr. 5. gr. geti lögreglustjóri heimilað að flytja inn hálfsjálfvirkar skammbyssur og hálfsjálfvirka riffla séu vopnin sérhönnuð og sannanlega ætluð til íþróttaiðkunar. Með þessari breytingu verður þannig heimilt að flytja inn þessar tilteknu tegundir skotvopna til íþróttaiðkunar en á hinn bóginn ekki lengur heimilt að flytja inn skotvopn samkvæmt 4. mgr. 5. gr. á grundvelli þess að um safnvopn sé að ræða. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er þessari breytingu ætlað að sporna við óhóflegum innflutningi á sjálfvirkum og hálfsjálfvirkum skotvopnum undanfarin ár, með skírskotun til þess að umrædd vopn séu safnvopn, og með því er brugðist við atriðum sem bent var á í áhættumatsskýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá 2019 um skipulagðra brotastarfsemi á Íslandi og ábendingum í skýrslu þjóðaröryggisráðs frá 2021 um fjölgun slíkra vopna.
    Meiri hlutinn telur rétt að hafa áfram í lögunum heimild til undanþágu frá hinu almenna banni við innflutningi skotvopna samkvæmt a–d-lið 4. mgr. 5. gr. vopnalaga, en í því felst að eingöngu verður heimilt að flytja til landsins hálfsjálfvirk skotvopn, annars vegar til að nota til íþróttaiðkunar og hins vegar í söfnunarskyni. Hvað safnvopnin varðar leggur meiri hlutinn til að einvörðungu verði heimilt að flytja inn hálfsjálfvirk safnvopn vegna aldurs þeirra og tengsla við hernámsliðið á Íslandi í síðari heimsstyrjöld og skuli vopnið m.a. vera í óbreyttri mynd frá því sem var á hernámstíma, sbr. nánari útfærslu í breytingartillögu. Þá skuli vopnið og tenging slíkra skotvopna við hernámsliðið vera bundin við íslenska grund en ekki loft eða haf í kringum Ísland. Telur meiri hlutinn þannig rétt að stuðla að því að söfnurum verði áfram gert kleift að safna slíkum vopnum hafi þau þá sérstöku sögulegu tengingu við land og þjóð sem lýst er hér að framan. Þá beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins við endurskoðun laganna að taka ákvæðið til endurskoðunar með hliðsjón af gefinni reynslu.

Samræming orðnotkunar um viðurkennd skotfélög annars vegar og viðurkennd skotíþróttafélög hins vegar.
    Fyrir nefndinni var rætt um hugtakanotkun um mismunandi félög samkvæmt frumvarpinu. Í samráði við dómsmálaráðuneyti telur meiri hlutinn að betur fari á því að samræma hugtakanotkun yfir „viðurkennd skotfélög“ og „viðurkennd skotíþróttafélög“ svo að eingöngu verði mælt fyrir um viðurkennd skotfélög. Leggur meiri hlutinn til breytingartillögu þess efnis.

Breytingar á orðalagi í lögum nr. 20/1991, um skipti á dánarbúum o.fl.
    Í 32. frumvarpsins eru lagðar til ýmsar breytingar á lögum um skipti á dánarbúum, nr. 20/1991, og á erfðalögum, nr. 8/1962. Í umsögn sýslumannaráðs eru lagðar til nokkrar minni háttar orðalagsbreytingar á lögum nr. 20/1991 í því skyni að samræma heiti stofnana, gæta að réttri hugtakanotkun og auka skýrleika ákvæðanna. Meiri hlutinn tekur undir þessar ábendingar og telur þær vera til bóta. Einnig leggur meiri hlutinn til nokkrar breytingartillögur sem eru tæknilegs eðlis og þarfnast ekki skýringar.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.
    Bergþór Ólason og Bryndís Haraldsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Bryndís Haraldsdóttir ritar undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

Alþingi, 12. desember 2023.

Bryndís Haraldsdóttir,
form., frsm.
Birgir Þórarinsson. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir.
Líneik Anna Sævarsdóttir. Jódís Skúladóttir.