Ferill 578. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 767  —  578. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla).

Frá velferðarnefnd.


1. gr.

    Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þeir sem eiga rétt á greiðslu örorkulífeyris skv. 24. gr., sbr. 26. gr., eða endurhæfingarlífeyris skv. 7. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, á árinu 2023 skulu fá eingreiðslu að fjárhæð 66.381 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Eingreiðsla þessi, sem skal innt af hendi eigi síðar en 31. desember 2023, skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2023 (481. mál) er gert ráð fyrir 1.600 millj. kr. einskiptisframlagi til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Greiðslan kemur til viðbótar hefðbundnum orlofs- og desemberuppbótum lífeyrisþega og 2,5% hækkun bóta á miðju þessu ári. Gert er ráð fyrir að fjárhæð eingreiðslunnar hækki um 7,4% í samræmi við hækkun bóta lífeyristrygginga 1. janúar sl. og aftur um 2,5% í samræmi við hækkun bóta lífeyristrygginga 1. júlí sl. og mun fjárhæð hennar því nema 66.381 kr. á árinu 2023.
    Með frumvarpi þessu er lagt til að kveðið verði á um það í ákvæði til bráðabirgða að eingreiðslan skuli ekki teljast til tekna greiðsluþega, og teljist þannig skattfrjáls, og að hún skuli ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna. Ákvæðið er til samræmis við ákvæði um fyrri eingreiðslur til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.