Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 776, 154. löggjafarþing 183. mál: skipulagslög (hagkvæmar íbúðir).
Lög nr. 111 22. desember 2023.

Lög um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (hagkvæmar íbúðir).


1. gr.

     Á eftir 39. gr. laganna kemur ný grein, 39. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Heimild til að skilyrða hluta af heildarfermetrafjölda íbúða.
     Sveitarfélögum er heimilt að gera kröfu um það við gerð deiliskipulags fyrir ný íbúðarsvæði að allt að 25% af heildarfermetrafjölda íbúða innan skipulagssvæðis verði fyrir íbúðir sem falla undir lög um almennar íbúðir og íbúðir sem falla undir VI. kafla A og VIII. kafla laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Á heimildin við hvort sem eigandi lands er sveitarfélag, ríki eða einkaaðili.

2. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Ákvæði 39. gr. a skal sæta endurskoðun þar sem horft skal til þess hvort og hvernig heimildin hefur verið nýtt af sveitarfélögum. Skal ráðherra skila Alþingi skýrslu um endurskoðunina eigi síðar en 1. febrúar 2027.

3. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 13. desember 2023.