Ferill 507. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 799  —  507. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Náttúruverndarsamtökum Íslands, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, LEX – lögmannsstofu, Rafbílasambandinu, Skattinum, Samgöngustofu, Bílgreinasambandinu og Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samtökum ferðaþjónustunnar, Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, Go Campers, Höldi ehf., Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði Íslands.
    Nefndinni bárust 20 erindi um málið, þar á meðal 18 umsagnir og tvö minnisblöð, sem eru aðgengileg á síðu málsins á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði nýtt kerfi til tekjuöflunar af ökutækjum og eldsneyti með því að taka upp kílómetragjald frá og með 1. janúar 2024 vegna notkunar rafmagns- og vetnisbifreiða annars vegar og tengiltvinnbíla hins vegar á vegakerfinu.

Umfjöllun.
    Í umsögnum sem nefndinni bárust var tekið undir þá sýn stjórnvalda að gæta þurfi jafnræðis við gjaldtöku í vegakerfinu og undir þá grunnhugsun að þeir sem nota vegakerfið skuli greiða fyrir það. Jafnframt komu fram í umsögnum sjónarmið þeirra sem reka ökutækjaleigur um að fyrirkomulag álagningar kílómetragjalds gæti reynst ökutækjaleigum sérstaklega snúið. Til að mynda var nefnt að viðmið við áætlun ríkisskattstjóra um meðalakstur fyrir ökutækjaleigur væri of hátt. Í þeim efnum vill meiri hlutinn benda á að þrátt fyrir áætlun ríkisskattstjóra skv. 1. og 2. mgr. 9. gr. sé ökutækjaleigum, eins og öðrum gjaldskyldum aðilum, heimilt að skrá nýja áætlun í stað þeirrar sem ríkisskattstjóri leggur til. Þá geti ökutækjaleigur, eins og aðrir gjaldskyldir aðilar, tekið þær bifreiðar sem ekki eru í notkun af skráningarmerkjum og þar með undanskilið sig greiðslu samkvæmt ákvæðum laganna.

Breytingartillögur.
Undanþága vegna bifreiða í eigu björgunarsveita (4. gr.).
    Bifreiðar í eigu björgunarsveita eru skv. 1. tölul. 4. gr. undanþegnar kílómetragjaldi. Í umsögn Slysavarnafélagsins Landsbjargar er lagt til að gildissvið undanþágunnar verði rýmkað þannig að skýrt verði að hún nái til björgunarsveita sem og viðurkenndra heildarsamtaka þeirra. Meiri hlutinn tekur undir tillöguna og leggur til samhljóða viðbót við 1. tölul. 4. gr. Að auki leggur meiri hlutinn til orðalagsbreytingu á 1. tölul. ákvæðisins, að höfðu samráði við ráðuneytið, þannig að ákvæðið taki til bifreiða sem ætlaðar eru fyrir starfsemi björgunarsveita, sem og viðurkenndra heildarsamtaka þeirra, enda liggi fyrir staðfesting landssamtaka björgunarsveita á því að viðkomandi bifreið verði einungis notuð í þágu björgunarsveita. Breytingin helgast af því að bifreiðar sem notaðar eru við störf björgunarsveita eru ekki sérstaklega auðkenndar sem slíkar í ökutækjaskrá. Sé því eðlilegra að styðjast við sama fyrirkomulag og stuðst hefur verið við í sambærilegum undanþáguákvæðum vegna björgunarsveita í lögum.

Fyrirframgreiðsla kílómetragjalds (7. mgr. 9. gr. og ákvæði til bráðabirgða II).
    Nefndinni barst minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneyti þar sem fram kom að brýnt væri að gera breytingar á gjalddaga fyrirframgreiðslu kílómetragjalds þannig að gjalddagi verði fyrsta dag næsta mánaðar og eindagi 14 dögum síðar, en ekki fyrsta dag hvers mánaðar líkt og gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Í því sambandi er bent á að slík innheimta sé eðlilegri í ljósi þess að gjaldskyldur aðili greiði þá vegna aksturs í mánuðinum á undan en ekki fyrir fram upp í væntanlegan akstur til loka mánaðarins. Breytingin muni jafnframt einfalda innleiðingu kílómetragjalds eftir áramót og auka svigrúm aðila til að bregðast við áskorunum sem fylgja innleiðingu þess. Til samræmis er lögð til breyting á ákvæði til bráðabirgða II þannig að gjalddagi fyrsta gjaldtímabils ársins 2024 verði 1. febrúar 2024. Þá skuli áætlun ríkisskattstjóra um meðalakstur bifreiðar vegna fyrsta gjaldtímabils ársins 2024 gerð og birt í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda fyrir 1. febrúar 2024. Meiri hlutinn telur tillögu ráðuneytisins til bóta, bæði varðandi innleiðingu gjaldsins og framkvæmdar laganna almennt, og gerir hana að sinni.

Kæruheimildir (19. gr.).

    Samkvæmt 3. mgr. 19. gr. er skráning faggiltrar skoðunarstofu á stöðu akstursmælis kæranleg til Samgöngustofu. Þá er í 4. mgr. kveðið á um að heimilt sé að kæra úrskurð Samgöngustofu til ráðherra. Í umsögn Samgöngustofu kom fram að kæruheimildin í 3. mgr. 19. gr. væri óþörf enda væri stofnuninni heimilt að leiðrétta augljósar skráningarskekkjur á stöðu akstursmælis að höfðu samráði við gjaldskyldan aðila eða samkvæmt beiðni hans þar um skv. 7. mgr. 8. gr. Meiri hlutinn tekur undir þetta sjónarmið og bendir á að ákvörðun Samgöngustofu á grundvelli 7. mgr. 8. gr. er í eðli sínu stjórnvaldsákvörðun. Við töku slíkrar ákvörðunar væri stofnunin því bundin af málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga og óskráðum meginreglum stjórnsýsluréttar. Þá kom fram í minnisblaði ráðuneytisins að breytingartillagan væri til bóta. Með hliðsjón af framangreindu er lagt til að 3. og 4. mgr. 19. gr. falli brott.

Lögveð og fjárnám (21. gr.).
    Samkvæmt 21. gr. frumvarpsins hvílir kílómetragjald og vanskráningargjald, ásamt dráttarvöxtum og innheimtukostnaði, sem lögveð á hlutaðeigandi bifreið. Í umsögnum Bílgreinasambandsins og Samtaka verslunar og þjónustu koma fram áhyggjur samtakanna um að álitamál kunni að skapast vegna þessa þar sem algengt er að ökutæki skipti ört um hendur. Í minnisblaði ráðuneytisins er nokkuð fjallað um lögveðsheimildir í öðrum lögum vegna vangoldinna opinberra gjalda. Með hliðsjón af því sem þar kemur fram telur meiri hlutinn ekki óeðlilegt að kílómetragjald og vanskráningargjald sé tryggt með lögveði á hlutaðeigandi bifreið. Hins vegar tekur meiri hlutinn undir þá athugasemd samtakanna að erfitt getur orðið í framkvæmd fyrir nýjan eiganda ökutækis að vita hvort lögveð hvíli á bifreiðinni. Til að bregðast við þeim vanda er í minnisblaði ráðuneytisins lagt til að lögveð falli niður við eigendaskipti hafi hinn nýi eigandi hvorki vitað né mátt vita um lögveðið. Meiri hlutinn telur breytingartillögu ráðuneytisins til bóta og gerir hana að sinni.

Tímabundin undanþága ökutækjaleigna frá álagi skv. 6. mgr. 10. gr. (nýtt ákvæði til bráðabirgða).
    Í 6. mgr. 10. gr. er kveðið á um álag sem skal lagt á mismun sem stafar af of lágri fyrirframgreiðslu kílómetragjalds. Með sama hætti skal bæta 2,5% álagi á ársgrundvelli á mismun sem á rætur að rekja til of hárrar fyrirframgreiðslu. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að slíkt álag kynni að vera íþyngjandi fyrir ökutækjaleigur, samkvæmt lögum um leigu skráningarskyldra ökutækja, á fyrstu mánuðum álagningar gjaldsins enda væru auknar líkur á því að þær sættu íþyngjandi álögum vegna vanáætlunar gjaldsins á meðan ekki væri komin reynsla á áætlanagerð þeirra. Leggur meiri hlutinn því til breytingu þess efnis að við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða sem kveði á um undanþágu ökutækjaleigna, sem hafa starfsleyfi skv. 3. gr. laga um leigu skráningarskyldra ökutækja, frá ákvæði 6. mgr. 10. gr. sem gildi til 30. júní 2024.

Breytingartillögur samkvæmt umsögn Skattsins.
    Í umsögn Skattsins eru lagðar til nokkrar breytingar á einstökum ákvæðum frumvarpsins í níu liðum. Um er að ræða breytingar sem eru að meginstefnu ýmist tæknilegar eða til að auka skýrleika laganna. Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis kemur fram að ráðuneytið telji þær til bóta. Jafnframt eru í minnisblaðinu lagðar til þrjár breytingar til viðbótar í samræmi við frekari ábendingar sem ráðuneytinu bárust frá Skattinum. Meiri hlutinn leggur til breytingar til samræmis við það sem fram kemur í 8. kafla í minnisblaði ráðuneytisins og umsögn Skattsins. Nánar tiltekið er um að ræða eftirfarandi breytingar (með vísan til viðeigandi liðar í breytingartillögu):
     1.      Lagt er til að við 5. gr. bætist ný málsgrein sem taki til þeirra aðstæðna þegar bifreið er flutt úr landi eða númer lögð inn. Þykir rétt að fram fari álagning vegna liðinna gjaldtímabila sem ekki hefur verið lagt á sem og yfirstandandi gjaldtímabils fram að álestri (2. tölul.).
     2.      Lagt er til að við 1. málsl. 1. mgr. 9. gr. bætist „gjaldskyldum aðila skv. 1. og 2. mgr. 3. gr.“ Þá er lagt til nýtt orðalag í 1. málsl. 2. mgr. 9. gr. Eins og ákvæðið hljóðar nú er ekki tekið á því hvernig áætla eigi kílómetragjald þegar umráðaskipti verða að bifreið, þ.e. þegar umráð byggjast á samningi við handhafa leyfis til að stunda eignaleigu eða fjármögnunarleigu samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, sbr. 2. mgr. 3. gr. frumvarpsins. Loks er lagt til að í stað orðsins „gjalddaga“ í 2. málsl. 7. mgr. 9. gr. komi „eindaga“ til að leiðrétta misritun. Almennt er miðað við að beri eindaga upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir (a-, b- og e-liður 3. tölul.).
     3.      Lagt er til að við 1. málsl. 5. mgr. 10. gr. bætist tilvísun til 2. málsl. 7. mgr. 9. gr. Jafnframt er lagt til að á eftir 1. málsl. 5. mgr. 10. gr. komi nýr málsliður. Um þá breytingu segir í minnisblaðinu að í þeim tilvikum sem fram koma í breytingartillögunni sé talið rétt að álagning kílómetragjalds og eftir atvikum endurgreiðsla kílómetragjalds ef svo ber undir fari fram strax um næstu mánaðamót en ekki fyrsta dag annars mánaðar eftir lok síðasta gjaldtímabils álagningar, sbr. meginreglu 1. málsl. 5. mgr. Þá er lagt til að í stað orðanna „fyrir eindaga“ í 3. málsl. 5. mgr. 10. gr. komi „á eindaga“ en það er til að taka af allan vafa um að íþyngjandi aðgerðum verði ekki beitt fyrr en ljóst er orðið að ekki hefur verið greitt á eindaga það gjald sem gjaldfallið er. Loks er lagt til nýtt orðalag 6. mgr. 10. gr. sem miðar að því að inneignarvextir verði greiddir þegar fyrirframgreiðsla hefur verið of há. Í tilvikum þar sem hún hefur verið of lág verði 2,5% álagi bætt við mismun (b–e-liður 4. tölul.).
     4.      Lögð er til breyting á orðalagi 1. málsl. 1. mgr. 13. gr. þannig að á eftir orðunum „stöðu akstursmælis“ komi „kaupandi á ársgrundvelli“. Þá er lögð til viðbót við 1. málsl. 2. mgr. 13. gr. í ljósi þess að rétt þykir að kveða á um að seljanda bifreiðar beri að gera upp liðin tímabil sem og yfirstandandi tímabil fram að eigendaskiptum. Loks er lögð til orðalagsbreyting á 3. mgr. 13. gr. til að hnykkja á því að einnig sé óheimilt að skrá eigendaskipti ef gjaldfallin fyrirframgreiðsla kílómetragjalds er ógreidd (5. tölul.).
     5.      Lagt er til að aukið verði við orðalag 2. málsl. 1. mgr. 14. gr. Jafnframt er lagt til að nýr málsliður bætist við þar sem fram komi að þrátt fyrir 1. málsl. beri ekki að skrá stöðu akstursmælis við afskráningu gjaldskyldrar bifreiðar sem undanþegin hefur verið greiðslu skv. 1. eða 2. tölul. 5. gr. Fari afskráning gjaldskyldrar bifreiðar fram við þessar aðstæður verði að telja óþarft að lesa af akstursmæli (6. tölul.).
     6.      Lagt er til nýtt orðalag 15. gr. þar sem ástæða þykir að kveða skýrar á um hvað beri að gera við þær aðstæður þegar akstursmælir telur kílómetra ekki rétt. Að öðru leyti er vísað til athugasemda við frumvarpsgreinina í greinargerð eftir því sem við á (7. tölul.).
     7.      Í 3. mgr. 18. gr. og 1. mgr. 19. gr. er kveðið á um að ríkisskattstjóri eða Samgöngustofa hafi tvo mánuði til að kveða upp úrskurð um kæru. Lagt er til að frestur þessi verði þrír mánuðir til samræmis við almenna málsmeðferð við skattframkvæmd (8. tölul. og a-liður 9. tölul.).
     8.      Lagt er til að við ákvæði til bráðabirgða II bætist tvær vísanir til lagaákvæða sem eru til leiðréttingar á texta frumvarpsins (a- og d-liður 11. tölul.).
     9.      Loks er lagt til að nýtt ákvæði til bráðabirgða bætist við frumvarpið vegna bifreiða sem eru erlendis eða skráningarmerkja sem eru í varðveislu skráningaraðila við gildistöku laganna í ljósi þess að ekki reyni á gjaldskyldu samkvæmt lögunum við þessar aðstæður og sé því skráning á stöðu akstursmælis með öllu óþörf (a-liður 12. tölul.).

Tillaga um afgreiðslu.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

Alþingi, 14. desember 2023.

Teitur Björn Einarsson,
form., frsm.
Jóhann Friðrik Friðriksson. Ágúst Bjarni Garðarsson.
Steinunn Þóra Árnadóttir. Njáll Trausti Friðbertsson.