Ferill 481. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 832  —  481. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2023.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar (SVS, NTF, JSkúl, JFF, TBE, VilÁ).


    Við bætist ný grein, Heimildir ráðherra, 3. gr., svohljóðandi:
    Eftirtalin breyting verður á 6. gr. fjárlaga fyrir árið 2023:
    Nýr liður:
    5.18    Að auka við hlutafé í Leigufélaginu Bríeti ehf. til að styðja við tímabundin kaup félagsins á allt að 80 íbúðum sem leigja skal til Grindvíkinga með skilyrði um endurgreiðslu hlutafjárins með lækkun hlutafjár innan þriggja ára frá því að greiðslan var innt af hendi.