Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 842  —  1. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2024.

Frá allsherjar- og menntamálanefnd.


    Við sundurliðun 2 bætist eftirfarandi:

Heiðurslaun listamanna samkvæmt ákvörðun Alþingis.


    Sá hópur listamanna sem tilgreindur er í fjárlögum fyrir árið 2021 og fjárlögum fyrir árið 2023, að viðbættum Kristjáni Jóhannssyni, nýtur heiðurslauna, sbr. málaflokk 18.30 Menningarsjóðir og lög um heiðurslaun listamanna, nr. 66/2012.

Greinargerð.

    Á árinu 2021 bættust ekki fleiri listamenn við þann hóp sem naut heiðurslauna samkvæmt ákvörðun Alþingis 18. desember 2020, sbr. fjárlög fyrir árið 2021. Við fjárlög fyrir árið 2023 bættust fjórir við þann hóp listamanna sem nýtur heiðurslauna. Á árinu 2023 lést Guðbergur Bergsson. Með breytingartillögunni er lagt til að einn listamaður bætist við þann hóp listamanna sem nýtur heiðurslauna.