Ferill 599. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 902  —  599. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um styrki og samstarfssamninga.

Frá Bergþóri Ólasyni.


    Hvaða fyrirtæki og félagasamtök hafa notið styrks frá ráðuneytinu, undirstofnunum þess eða sjóðum á vegum ráðuneytisins eða undirstofnana þess eða gert samstarfssamning við þessa aðila frá 1. janúar 2017 þar til nú, þar sem samanlögð upphæð styrks eða fjárhæð í samstarfssamningi var 10 millj. kr. eða hærri? Svar óskast sundurliðað eftir árum, eftir því hvers eðlis styrkur eða samstarfssamningur var og eftir því hversu oft styrkur eða samstarfssamningur var endurnýjaður.


Skriflegt svar óskast.