Ferill 622. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 928  —  622. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um kostnað vegna skemmda á húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Frá Birgi Þórarinssyni.


     1.      Hver var kostnaður ríkissjóðs, frá 1. janúar 2019 til 1. janúar 2024, vegna skemmda sem unnar voru á húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     2.      Hver er fjöldi reikninga á fyrrgreindu tímabili sem ríkissjóði hafa borist frá rekstraraðilum eða eigendum þessa húsnæðis vegna skemmda? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     3.      Eru þessir reikningar sannreyndir af hálfu greiðanda með einhverjum hætti? Ef svo er, hvaða mat fer fram á skemmdu húsnæði af hálfu greiðanda áður en reikningar eru greiddir og hver framkvæmir það mat?
     4.      Í hve mörgum tilfellum á tímabilinu var fjárhæðin sem ríkið greiddi frábrugðin upphaflegri fjárhæð reiknings og hvaða ástæður lágu að baki því? Svar óskast sundurliðað eftir hverju tilviki.
     5.      Hverjar eru afleiðingar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd ef þeir valda tjóni á húsnæði sem þeir dvelja í?


Skriflegt svar óskast.