Ferill 721. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1080 — 721. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um reglubundna skimun fyrir krabbameini í ristli.
Frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur.
1. Er unnið að því í ráðuneytinu að hefja reglubundna skimun fyrir krabbameini í ristli? Ef svo er, hvernig miðar þeirri vinnu?
2. Hvenær áætlar ráðherra að reglubundin skimun fyrir krabbameini í ristli geti hafist?
Munnlegt svar óskast.