Ferill 724. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1086  —  724. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um ytri rýni aðgerða á grundvelli laga um almannavarnir.

Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.


    Hyggst ráðherra endurskoða hvernig staðið er að ytri rýni aðgerða sem gripið er til á grundvelli 29. gr. laga um almannavarnir, nr. 82/2008?


Munnlegt svar óskast.