Ferill 725. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1087  —  725. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um vopnuð útköll.

Frá Njáli Trausta Friðbertssyni.


    Hversu mörg hafa vopnuð útköll lögreglunnar annars vegar og sérsveitarinnar hins vegar verið á ári hverju frá árinu 2013? Svar óskast sundurliðað eftir lögregluumdæmum.


Skriflegt svar óskast.