Ferill 629. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1151 — 629. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002 (endurgreiðslur).
Frá velferðarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gest frá mennta- og barnamálaráðuneyti.
Nefndinni bárust engar umsagnir um málið.
Frumvarpið felur í sér afmarkaðar breytingar á 15. gr. barnaverndarlaga í því skyni að skýra nánar þær reglur sem gilda um endurgreiðslur ríkissjóðs vegna barnaverndarþjónustu sem er, samkvæmt lögunum, veitt börnum sem ekki hafa fasta búsetu á Íslandi eða börnum sem eru án forsjáraðila sinna og hafa hlotið alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi hér á landi.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Hún ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Guðbrandur Einarsson, áheyrnarfulltrúi, er samþykkur áliti þessu.
Alþingi, 4. mars 2024.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, form., |
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, frsm. | Jóhann Páll Jóhannsson. |
Líneik Anna Sævarsdóttir. | Bryndís Haraldsdóttir. | Óli Björn Kárason. |
Ásmundur Friðriksson. | Guðmundur Ingi Kristinsson. | Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir. |