Ferill 29. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1170 — 29. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Orkustofnun og raforkulögum (Raforkueftirlitið).
(Eftir 2. umræðu, 6. mars.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um Orkustofnun, nr. 87/2003.
1. gr.
2. gr.
Hlutverk Raforkueftirlitsins er:
1. að sinna raforkueftirliti samkvæmt raforkulögum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra,
2. að vera stjórnvöldum til ráðgjafar og umsagnar um raforkumál,
3. að annast önnur verkefni sem Raforkueftirlitinu eru falin samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.
Til að tryggja sjálfstæði sitt, gagnsæi og jafnræði við raforkueftirlit skal Raforkueftirlitið setja sér starfsreglur og birta þær almenningi.
Raforkueftirlitið skal vera sjálfstæð eining innan Orkustofnunar sem er rekin fjárhagslega aðgreind frá annarri starfsemi stofnunarinnar.
3. gr.
Ráðherra skipar skrifstofustjóra Raforkueftirlitsins til fimm ára í senn að fengnu mati hæfnisnefndar, sbr. 3. mgr. Ber hann faglega og stjórnunarlega ábyrgð á rekstri Raforkueftirlitsins. Sama einstakling er aðeins hægt að skipa skrifstofustjóra Raforkueftirlitsins tvisvar sinnum.
Við skipun í embætti skrifstofustjóra Raforkueftirlitsins skal ráðherra skipa þriggja manna nefnd til að meta hæfni umsækjenda um embættið. Niðurstaða hæfnisnefndar er ráðgefandi við skipun í embætti.
II. KAFLI
Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003.
4. gr.
a. (3. gr. a.)
Yfirstjórn.
b. (3. gr. b.)
Starfshættir Raforkueftirlitsins.
Raforkueftirlitið skal hafa samráð við Samkeppniseftirlitið um eftirlit með starfsemi og gjaldskrá flutningsfyrirtækisins og dreifiveitna eftir því sem við á.
Til að tryggja sjálfstæði, gagnsæi og jafnræði í störfum sínum við raforkueftirlit skal Raforkueftirlitið setja sér starfsreglur. Ráðherra getur, að fenginni umsögn Raforkueftirlitsins, kveðið nánar á um hlutverk og verkefni Raforkueftirlitsins í reglugerð.
Raforkueftirlitið skal hafa samráð við eftirlitsskylda aðila um framkvæmd og þróun eftirlitsins. Í því skyni skal starfa sérstök samráðsnefnd sem skipuð er fulltrúum eftirlitsskyldra aðila. Raforkueftirlitið skal eiga reglulega fundi með samráðsnefndinni. Samráðsnefndin hefur ekki ákvörðunarvald í málefnum Raforkueftirlitsins. Nánar skal kveðið á um samráðsnefndina í reglugerð, m.a. um skipan hennar.
5. gr.
6. gr.
7. gr.
8. gr.
9. gr.
a. (24. gr.)
Eftirlit Orkustofnunar og Raforkueftirlitsins.
Hafa skal eftirlit með því að fyrirtæki sem starfa samkvæmt lögum þessum fullnægi þeim skilyrðum sem um starfsemina gilda samkvæmt lögum þessum, reglugerðum settum samkvæmt þeim og öðrum heimildum.
Orkustofnun og Raforkueftirlitinu er heimilt að gefa út almennar leiðbeiningar og reglur um starfsemi aðila sem heyra undir lög þessi, enda varði málefnið hóp eftirlitsskyldra aðila.
Hafa skal yfirsýn og eftirlit með tiltæku varaafli raforku í landinu. Í reglugerð skal nánar kveðið á um eftirlitsheimildir og úrræði til að tryggja viðmið til grundvallar ákvörðunum um varaafl, skiptingu kostnaðar milli flutningsfyrirtækis og dreifiveitna og að fullnægjandi varaafl sé til staðar til að bregðast við áföllum í raforkukerfinu.
b. (25. gr.)
Eftirlitsheimildir.
Eftirlitsaðilar geta í eftirlitsstörfum sínum krafist upplýsinga og gagna frá öðrum stjórnvöldum óháð þagnarskyldu þeirra.
Eftirlitsaðilar geta við rannsókn mála gert nauðsynlegar athuganir á starfsstöð eftirlitsskylds aðila og lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn ákvæðum laga þessara, reglugerðum settum samkvæmt þeim, skilyrðum leyfis eða öðrum heimildum. Við framkvæmd slíkra aðgerða skal fylgja ákvæðum laga um meðferð sakamála um leit og hald á munum.
c. (26. gr.)
Úrræði eftirlitsaðila.
Telji eftirlitsaðili að gjaldskrá sem tilkynnt hefur verið uppfylli ekki kröfur laga þessara eða reglugerða settra samkvæmt þeim tekur gjaldskráin ekki gildi fyrr en úr hefur verið bætt að mati eftirlitsaðila. Þá getur eftirlitsaðili gert flutningsfyrirtækinu og dreifiveitum að breyta gjaldskrá sinni að viðlögðum dagsektum.
10. gr.
a. Í stað orðsins „Orkustofnun“ kemur: Eftirlitsaðili.
b. Í stað orðsins „stofnunarinnar“ kemur: eftirlitsaðila.
11. gr.
a. Í stað orðsins „Orkustofnun“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Eftirlitsaðili.
b. Í stað orðanna „Orkustofnun getur jafnframt lagt“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: Jafnframt má leggja.
c. Í stað orðanna „sem Orkustofnun ákvarðar“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: skv. 1. mgr.
d. Orðið „Orkustofnunar“ í 3. mgr. fellur brott.
12. gr.
13. gr.
14. gr.
a. 2. mgr. orðast svo:
Fyrir 15. september ár hvert skal skrifstofustjóri Raforkueftirlitsins gefa ráðherra skýrslu um framkvæmd raforkueftirlits á liðnu ári og áætlaðan rekstrarkostnað næsta árs vegna eftirlits á grundvelli laga þessara. Í skýrslunni skal jafnframt lagt mat á þróun eftirlitsins undangengin þrjú ár. Skýrslunni skal fylgja umsögn samráðsnefndar eftirlitsskyldra aðila, sbr. 3. gr. b, um áætlað rekstrarumfang næsta árs ásamt áliti skrifstofustjóra Raforkueftirlitsins á umsögninni. Til að samráðsnefndin geti gefið umsögn skal Raforkueftirlitið eigi síðar en 15. ágúst ár hvert senda henni upplýsingar um áætlað rekstrarumfang ásamt skýringum á helstu rekstrarliðum. Ef niðurstaða skýrslunnar gefur tilefni til að breyta gjaldtöku skv. 1. mgr. skal ráðherra leggja fram frumvarp þar að lútandi fyrir Alþingi.
b. Í stað orðsins „Orkustofnun“ í 1. og 4. málsl. 3. mgr. kemur: Raforkueftirlitið.
15. gr.
16. gr.
a. 1. mgr. fellur brott.
b. Á eftir orðinu „Orkustofnunar“ í 2. mgr. kemur: eða Raforkueftirlitsins.
17. gr.
a. Í stað orðanna „Orkustofnun“ og „Orkustofnunar“ í 2. málsl. 2. mgr., 1. málsl. 3. mgr., tvívegis í 4. mgr., tvívegis í 5. mgr. og þrívegis í 6. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarfalli: eftirlitsaðili.
b. Í stað orðsins „stofnunin“ í 2. málsl. 2. mgr., 2. málsl. 5. mgr. og 2. málsl. 3. tölul. 6. mgr. kemur: eftirlitsaðili.
c. Í stað orðanna „hún“ og „hennar“ í 1. málsl. 4. mgr. og 1. málsl. 6. mgr. kemur: hann; og: hans.
18. gr.
Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast ákvæði 3. gr. gildi 1. janúar 2026.
19. gr.
a. Við 1. mgr. 22. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Skrifstofustjóri Raforkueftirlitsins.
b. Á eftir orðinu „skattrannsóknarstjóra“ í 2. málsl. 1. mgr. 39. gr. laganna kemur: skrifstofustjóra Raforkueftirlitsins.