Ferill 843. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1264  —  843. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um gjaldskrá vegna tannréttinga barna með skarð í vör eða tanngarði.

Frá Hákoni Hermannssyni.


     1.      Stendur til að breyta gjaldskrá Sjúkratrygginga þannig að hún nái yfir tannréttingameðferðir fyrir börn með skarð í vör eða tanngarði? Ef svo er, með hvaða hætti og hvenær?
     2.      Hafa Sjúkratryggingar hafnað niðurgreiðslu aðgerða eða meðferða barna með skarð í vör eða tanngarði frá 1. janúar 2022?
     3.      Helst réttur til niðurgreiðslu tannréttinga, aðgerða og meðferða vegna fyrrgreinds fæðingargalla eftir að 18 ára aldri er náð?


Skriflegt svar óskast.