Ferill 24. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1299  —  24. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um háskóla, nr. 63/2006 (örnám og prófgráður).

(Eftir 2. umræðu, 20. mars.)


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
     a.      Í stað 2. málsl. 2. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Kveða skal á um viðurkenndar prófgráður og lokapróf sem háskólar skulu miða við í viðmiðum um æðri menntun og prófgráður, útgefnum af ráðherra skv. 5. gr. Viðurkenndar prófgráður og lokapróf skulu byggjast á alþjóðlegum viðmiðum um hæfni við námslok.
     b.      Í stað tilvísunarinnar „skv. 2. mgr.“ í 3. mgr. kemur: sem skilgreind eru í viðmiðum um æðri menntun og prófgráður skv. 5. gr.
     c.      Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Háskólar geta skilgreint örnám eða annað styttra nám til námseininga á námsstigum sem skilgreind eru í viðmiðum um æðri menntun og prófgráður skv. 5. gr.

2. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Nemendur sem hafið hafa nám til diplómaprófs eða viðbótarprófs á meistarastigi, sem jafngildir færri en 60 stöðluðum námseiningum, fyrir 1. ágúst 2025 skulu eiga þess kost að ljúka náminu samkvæmt því námsskipulagi sem í gildi var við upphaf náms.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.