Ferill 505. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1313  —  505. mál.

3. umræða.


Frávísunartillaga


í málinu: Frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993 (framleiðendafélög).

Frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur og Guðmundi Inga Kristinssyni.


    Þar sem málið hefur tekið verulegum breytingum, sem ekki hafa verið metnar út frá mögulegum áhrifum á bændur, neytendur eða yfirstandandi kjarasamninga, er lagt til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.