Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1321, 154. löggjafarþing 24. mál: háskólar (örnám og prófgráður).
Lög nr. 31 3. apríl 2024.
Nemendur sem hafið hafa nám til diplómaprófs eða viðbótarprófs á meistarastigi, sem jafngildir færri en 60 stöðluðum námseiningum, fyrir 1. ágúst 2025 skulu eiga þess kost að ljúka náminu samkvæmt því námsskipulagi sem í gildi var við upphaf náms.
Þingskjal 1321, 154. löggjafarþing 24. mál: háskólar (örnám og prófgráður).
Lög nr. 31 3. apríl 2024.
Lög um breytingu á lögum um háskóla, nr. 63/2006 (örnám og prófgráður).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- Í stað 2. málsl. 2. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Kveða skal á um viðurkenndar prófgráður og lokapróf sem háskólar skulu miða við í viðmiðum um æðri menntun og prófgráður, útgefnum af ráðherra skv. 5. gr. Viðurkenndar prófgráður og lokapróf skulu byggjast á alþjóðlegum viðmiðum um hæfni við námslok.
- Í stað tilvísunarinnar „skv. 2. mgr.“ í 3. mgr. kemur: sem skilgreind eru í viðmiðum um æðri menntun og prófgráður skv. 5. gr.
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
2. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Nemendur sem hafið hafa nám til diplómaprófs eða viðbótarprófs á meistarastigi, sem jafngildir færri en 60 stöðluðum námseiningum, fyrir 1. ágúst 2025 skulu eiga þess kost að ljúka náminu samkvæmt því námsskipulagi sem í gildi var við upphaf náms.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 21. mars 2024.