Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
80. löggjafarþing 1959–60.
Þskj. 606  —  138. mál.





ÞINGSÁLYKTUN

um framleiðslu á steinsteyptum kerjum til hafnabygginga.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta fara fram athugun á því, hvort hagkvæmt sé að hefja framleiðslu á steinsteyptum kerjum til hafnargerða á einum eða fleiri stöðum á landinu. Verði aðstaðan á Akranesi sérstaklega athuguð í því sambandi.


Samþykkt á Alþingi 1. júní 1960.