Grímur Thomsen

Grímur Thomsen

Þingseta

Alþingismaður Rangæinga 1869–1874, alþingismaður Gullbringu- og Kjósarsýslu 1874–1880, alþingismaður Borgfirðinga 1880–1892.

Forseti neðri deildar 1885. Varaforseti sameinaðs þings og neðri deildar 1879.

    Þingstörf

    Æviágrip

    Fæddur á Bessastöðum á Álftanesi 15. maí 1820, dáinn 27. nóvember 1896. Foreldrar: Þorgrímur Tómasson (fæddur 9. febrúar 1782, dáinn 26. júní 1849) alþingismaður og kona hans Ingibjörg Jónsdóttir (fædd 26. júlí 1784, dáin 15. júlí 1865) húsmóðir. Maki (16. júlí 1870): Jakobína Jónsdóttir (fædd 30. nóvember 1835, dáin 30. janúar 1919) húsmóðir. Foreldrar: Jón Þorsteinsson og kona hans Þuríður Hallgrímsdóttir. Sonur Gríms og Magdalene Thoresen: Axel Peter Jensen (1843).

    Stúdent úr heimaskóla hjá Árna biskupi Helgasyni 1837. Hóf nám í lögfræði við Hafnarháskóla, en lagði brátt stund á heimspeki og bókmenntir, varð mag. art. 1845, en sú nafnbót hækkuð í dr. phil. með konungsúrskurði 1854. Hlaut 1846 konungsstyrk til kynnisfarar um Evrópu og stóð sú ferð tvö ár.

    Í þjónustu utanríkismálaráðuneytisins danska 1848–1866, síðast skrifstofustjóri. Var meðal annars um skeið aðstoðarmaður sendiherra Dana í Brussel og Lundúnum. Bóndi á Bessastöðum á Álftanesi frá 1868 til æviloka.

    Yfirskoðunarmaður landsreikninganna 1878–1885. Átti sæti í skólamálanefndinni 1875–1877.

    Alþingismaður Rangæinga 1869–1874, alþingismaður Gullbringu- og Kjósarsýslu 1874–1880, alþingismaður Borgfirðinga 1880–1892.

    Forseti neðri deildar 1885. Varaforseti sameinaðs þings og neðri deildar 1879.

    Ljóðskáld og ljóðaþýðandi, ljóðin hafa birst í mörgum útgáfum. Samdi merk rit og greinar um bókmenntir.

    Ritstjóri: Ísafold (1878–1879).

    Æviágripi síðast breytt 6. júlí 2015.

    Áskriftir