10.11.1982
Neðri deild: 9. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 524 í B-deild Alþingistíðinda. (304)

Um þingsköp

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. sem 1. flm. að þessu frv. gerði ég till. um allshn. Ég óska eftir því að forseti fari að því leyti að þinghefð, að hann beri fyrst upp nefnd sem 1. flm. leggur til. Sú till. sem forseti gerir var frá hv. 7. þm. Reykv., Guðmundi J. Guðmundssyni. Ég mótmæli því að sú stéttaskipting sé viðhöfð hér í þinginu að hann teljist til fyrstu stéttar en ég til þriðju. Við erum jafnir.