04.11.1986
Sameinað þing: 12. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í B-deild Alþingistíðinda. (462)

63. mál, bann við geimvopnum

Forseti (Helgi Seljan):

Forseti vill taka fram að hann sló í bjölluna áðan í sambandi við tímatakmörkun, en skv. þingsköpum mun það vera svo að umræður um þáltill. sem fjalla um utanríkismál eru án tímatakmarkana. Forseti biður velvirðingar á því að hafa truflað ræðumann í máli sínu áðan.