131. löggjafarþing — 19. fundur,  4. nóv. 2004.

Tilkynning um dagskrá.

[10:32]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill geta þess að klukkan 1.30 í dag, að loknu hádegishléi, fer fram umræða utan dagskrár um þróun verðbólgu í sambandi við kjarasamninga. Málshefjandi er hv. þm. Össur Skarphéðinsson. Hæstv. forsætisráðherra Halldór Ásgrímsson verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.