132. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2005.

Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

3. mál
[14:44]
Hlusta

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég get því miður ekki svarað spurningunni á þessu stigi. Þetta mál er á byrjunarreit. Það er verið að fara yfir það. Það er ásetningur ríkisstjórnarinnar að hægt verði að ljúka Sundabrautinni í heild sinni fyrir 2010. Ég vænti þess að um það geti náðst góð samstaða. En hvernig því verður nákvæmlega hagað er ekki hægt að segja til um sem stendur. En ég vona að ekki líði of langur tími áður en við fáum heildarmynd af því máli. Í því verður unnið. Það er eðlilegt að spurt sé en ég get á þessu stigi ekki svarað spurningu hv. þingmanns nákvæmar en þetta.