132. löggjafarþing — 42. fundur,  9. des. 2005.

Þingfrestun.

[19:21]
Hlusta

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til að fresta fundum Alþingis, 132. löggjafarþings, frá 9. desember 2005 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 17. janúar 2006.

Gjört á Bessastöðum, 8. desember 2005.

Ólafur Ragnar Grímsson.

________________

Halldór Ásgrímsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því hér með yfir að fundum Alþingis, 132. löggjafarþings, er frestað.

Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.