132. löggjafarþing — 117. fundur,  30. maí 2006.

Framhaldsfundir Alþingis.

[13:32]
Hlusta

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):

Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 30. maí 2006, kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 29. maí 2006.

 

Ólafur Ragnar Grímsson.

____________________

Halldór Ásgrímsson.

 

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

 

Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismenn svo og starfsmenn Alþingis býð ég velkomna til þingstarfa.